L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
13.05.2010 08:05
|
Ólafur Haukur Tómasson
David Martin á heimaslóðir
Varamarkvörðurinn
David Martin
er á förum frá Liverpool til síns gamla félags MK Dons en Liverpool keypti hann þaðan á 250 þúsund pund árið 2006. Þessi fyrrum markvörður undir 20 ára landsliðs Englendinga byrjaði vel með varaliði Liverpool eftir að hann kom og hélt hreinu í tíu skipti í fyrstu tíu leikjum sínum.
Martin hefur 19 sinnum verið á varamannabekknum hjá aðalliðinu en aldrei leikið með liðinu og virðist hafa fallið neðar í goggunarröðinni eftir mikinn stíganda Ungverjans efnilega Peter Gulacsi.
Martin hefur verið lánaður til Accrington Stanley, Leicester City, Tranmere Rovers, Leeds United og Derby en þar sem hann er orðinn 24 ára gamall og ekki kominn á hærri stall þá hefur Liverpool ákveðið að endurnýja samning hans.
Hann gendur til liðs við MK Dons þann fyrsta júlí þegar samningur hans við Liverpool rennur út og mun hann skrifa undir þriggja ára samning við félagið. MK Dons leikur í annari deildinni.
Við hjá Liverpool.is óskum honum alls hins besta hjá nýju liði.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir