| Sf. Gutt

Hver verður niðurstaðan?

Talið er stutt í að þeir Rafael Benítez og Martin Broughton, stjórnarformaður Liverpool, hittist til að ræða málin. Það gæti hugsanlega verið að þeir ræði málin áður en Liverpool spilar sinn síðasta á leiktíðinni á sunnudaginn þegar liðið leikur í Hull.  En hver skyldi niðurstaðan verða þegar þeir hittast?

Enskir fjölmiðlar geta nú sér, hver í kapp við annan, til um efni fundar þeirra Rafael og Martin. Margir telja að Rafael muni krefjast þess að fá ákveðna fjárupphæð til leikmannakaupa í sumar. Hann hefur lengi verið óánægður með hversu lítið hann hefur fengið og segist ekki hafa fengið það fjármagn sem til stóð að hann ætti að fá þegar hann framlengdi samning sinn á síðasta ári. Víst er að eitthvað verður minna um peninga hjá Liverpool því ekki komst liðið í Meistaradeildina. 

Ekki er ólíklegt að leikmannamál verði líka til umræðu. Fjölmiðlar telja að Chelsea og Manchester City ætli að reyna að ná Fernando Torres í sumar. Sumir telja að Rafael sé jafnvel tilbúinn að selja landa sinn á há upphæð og nota hana til að styrkja hópinn með kaupum á þremur til fjórum góðum leikmönnum.

Svo er það spurningin hvort Rafael Benítez telji nóg komið og vilji yfirgefa Liverpool. Forráðamenn Juventus bíða átekta og hjá því félagi getur Rafa fengið vinnu eftir því sem hermt er. Það er því margt sem þarf að ræða og við sjáum hvað setur.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan