| Ólafur Haukur Tómasson
Liverpool hefur staðfest að miðjumaðurinn efnilegi Jonjo Shelvey hafi komist að samkomulagi við félagið en hann stóðst læknisskoðun í gær og var gengið frá kaupunum í dag. Jonjo er talinn kosta Liverpool 1.7 milljón punda en kaupverð getur þó hækkað ef tilsettum árangri er náð með landsliði og félagsliði. Shelvey, sem þykir einn af efnilegustu Englendingunum í dag, hafði áður hafnað tilboði frá Chelsea.
Shelvey er aðeins átján ára gamall en hann hefur leikið 48 leiki fyrir Charlton, sem hafa náð umspilssæti upp úr annari deildinni, og er hann yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að spila með aðallðiðinu, það gerði hann 16 ára og 59 daga gamall.
Hann spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður en getur einnig leikið út á kanntinum og í holunni fyrir aftan framherjann. Eins og áður segir þykir Shelvey mikið efni og er talið að mörg lið hafi sýnt honum áhuga, hins vegar vann Liverpool kapphlaupið um kauða. Þetta er annar eftirsótti Englendingurinn sem að Liverpool fær til sín á skömmum tíma þar sem félagið festi kaup á hinum efnilega Raheem Sterling frá QPR fyrir skömmu. Ekki er slæmt að Liverpool sé farið að geta blandað sér í baráttuna um að koma höndum sínum yfir einhverja af efnilegustu leikmönnum Englands.
Sem hluti af félagsskiptunum þá munu Charlton og Liverpool hefja á milli sín samstarf þar sem liðin hjálpast að við þjálfun leikmanna í báðar áttir. Líklega hljómar það þannig að Liverpool getur sent unga leikmenn sína á lán til Charlton og Liverpool gæti í staðinn átt forkaupsrétt á ungum leikmönnum Charlton en það gæti auðveldað liðinu að festa kaup á ungum leikmönnum frá London.
Christian Purslow, forstjóri Liverpool, var hæst ánægður með kaupin: "Jonjo er spennandi enskur unglingalandsliðsmaður. Kaupin á honum er hluti af langtíma markmiðum okkar og okkur hlakkar öllum til að bjóða hann velkominn á Melwood."
Eins og áður segir mun Liverpool hefja samstarf við Charlton og er Richard Murray, stjórnarformaður Charlton, spenntur fyrir samstarfinu og ánægður fyrir hönd Jonjo: "Það var í mikilli tregðu sem við samþykktum tilboð Liverpool í Jonjo. Ekkert félag kýs að missa slíkan efnivið en heildarpakkinn er eitthvað sem við gátum ekki neitað, og hann er einnig heillandi fyrir Jonjo. Liverpool mun þróa hann á næstu árum í topp leikmann og ég get ekki hugsað mér betri stað fyrir hann til að fara á."
Jonjo mun koma til Liverpool þann 10.maí eftir að ensku deildunum lýkur og er hann önnur kaupin sem Liverpool hafa gengið frá fyrir sumarið en félagið hefur samið við serbneska sóknarmanninn Milan Jovanovic sem býður eftir atvinnuleyfi áður en hann getur klárað félagsskiptin.
TIL BAKA
Liverpool hefur fest kaup á Shelvey
Liverpool hefur staðfest að miðjumaðurinn efnilegi Jonjo Shelvey hafi komist að samkomulagi við félagið en hann stóðst læknisskoðun í gær og var gengið frá kaupunum í dag. Jonjo er talinn kosta Liverpool 1.7 milljón punda en kaupverð getur þó hækkað ef tilsettum árangri er náð með landsliði og félagsliði. Shelvey, sem þykir einn af efnilegustu Englendingunum í dag, hafði áður hafnað tilboði frá Chelsea.Shelvey er aðeins átján ára gamall en hann hefur leikið 48 leiki fyrir Charlton, sem hafa náð umspilssæti upp úr annari deildinni, og er hann yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að spila með aðallðiðinu, það gerði hann 16 ára og 59 daga gamall.
Hann spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður en getur einnig leikið út á kanntinum og í holunni fyrir aftan framherjann. Eins og áður segir þykir Shelvey mikið efni og er talið að mörg lið hafi sýnt honum áhuga, hins vegar vann Liverpool kapphlaupið um kauða. Þetta er annar eftirsótti Englendingurinn sem að Liverpool fær til sín á skömmum tíma þar sem félagið festi kaup á hinum efnilega Raheem Sterling frá QPR fyrir skömmu. Ekki er slæmt að Liverpool sé farið að geta blandað sér í baráttuna um að koma höndum sínum yfir einhverja af efnilegustu leikmönnum Englands.
Sem hluti af félagsskiptunum þá munu Charlton og Liverpool hefja á milli sín samstarf þar sem liðin hjálpast að við þjálfun leikmanna í báðar áttir. Líklega hljómar það þannig að Liverpool getur sent unga leikmenn sína á lán til Charlton og Liverpool gæti í staðinn átt forkaupsrétt á ungum leikmönnum Charlton en það gæti auðveldað liðinu að festa kaup á ungum leikmönnum frá London.
Christian Purslow, forstjóri Liverpool, var hæst ánægður með kaupin: "Jonjo er spennandi enskur unglingalandsliðsmaður. Kaupin á honum er hluti af langtíma markmiðum okkar og okkur hlakkar öllum til að bjóða hann velkominn á Melwood."
Eins og áður segir mun Liverpool hefja samstarf við Charlton og er Richard Murray, stjórnarformaður Charlton, spenntur fyrir samstarfinu og ánægður fyrir hönd Jonjo: "Það var í mikilli tregðu sem við samþykktum tilboð Liverpool í Jonjo. Ekkert félag kýs að missa slíkan efnivið en heildarpakkinn er eitthvað sem við gátum ekki neitað, og hann er einnig heillandi fyrir Jonjo. Liverpool mun þróa hann á næstu árum í topp leikmann og ég get ekki hugsað mér betri stað fyrir hann til að fara á."
Jonjo mun koma til Liverpool þann 10.maí eftir að ensku deildunum lýkur og er hann önnur kaupin sem Liverpool hafa gengið frá fyrir sumarið en félagið hefur samið við serbneska sóknarmanninn Milan Jovanovic sem býður eftir atvinnuleyfi áður en hann getur klárað félagsskiptin.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

