| Ólafur Haukur Tómasson
Stuðningsmenn Liverpool fengu líklega flestir ósk sína uppfyllta um daginn, eða upphaf hennar í það minnsta, þegar eigendur félagsins greindu frá því að félagið hefði verið sett á sölu og sé nú leit að nýjum eigendum á félaginu.
TIL BAKA
Viðtal við Martin Broughton
Stuðningsmenn Liverpool fengu líklega flestir ósk sína uppfyllta um daginn, eða upphaf hennar í það minnsta, þegar eigendur félagsins greindu frá því að félagið hefði verið sett á sölu og sé nú leit að nýjum eigendum á félaginu.
Þeir byrjuðu á því að ráða fjármáladeild Barclays Capital til að leita að mögulegum bjóðendum og þeir réðu svo Martin Broughton sem stjórnarformann félagsins en hann mun koma til með að stjórna söluferlinu.
Broughton er virtur í viðskiptaheiminum og gegnir hann meðal annars stöðu stjórnarformanns British Airways. Hann kom í viðtal við opinbera heimasíðu félagsins í kjölfar ráðningarinnar, hér er það viðtal.
Aðspurður hvaða hlutverki hann gegnir í félaginu svaraði hann: "Stjórnarhópurinn er frábær. Christian Purslow, Philip Nash og Ian Ayre mynda öflugan stjórnarhóp. Þeir sjá fyrst og fremst um að reka félagið og ég sé um söluferlið. Ég mun vinna náið með Christian í söluferlinu. Hann mun líka taka þátt í því.
Ég held að þetta tákni nýja og bjarta framtíð. Þetta þýðir skýrleiki á uppbyggingunni, skýrleiki á eignarhaldinu, þetta þýðir fjárfesting á nýja leikvanginum, þetta táknar félag sem er byggt upp til að verða árangursríkt í framtíðinni.
Ég held að þetta sé skipulagt. Einhver kemur inn og snýr sér aðeins að þessu. Ráðgjafarnir eru einbeittir á að gera þetta 100% fyrir félagið. Þetta er ekki tilfallandi ferli sem hefur áður verið til staðar. Hlutverk mitt er að ganga úr skugga úr að Liverpool verði sigursælt í framtíðinni. Það er mjög mikilvægt núna að við finnum réttan eigenda en ekki bara einhvern nýjan eigenda.
Ég bið stuðningsmennina um þolinmæði. Þeir vilja fá það sem ég vil fá - ekki bara hæstbjóðanda heldur besta bjóðandan til langs tíma. Skilaboð mín til stuðningsmannana eru þessi: sýniði svolitla þolinmæði og eftir smá tíma mun ég skila þessu af mér."
Þegar hann var spurður um mikilvægi byggingu leikvangarins í kringum söluna, svaraði hann: "Ég hef litið á teikningar af leikvanginum. Hann er tilbúinn til byggingar og það eru yfirgnæfandi fjárhagsleg rök fyrir tilvonandi kaupendur að halda áfram með leikvanginn. Bjóðendurnir væru vitlausir að hrinda byggingu leikvangsins ekki í framkvæmd og það er eitthvað sem verður rætt um í viðræðunum. Þú færð ekki að kaupa félagið ef þú ert ekki reiðubúinn að gangast að þessu."
Þegar hann var spurður um mikilvægi byggingu leikvangarins í kringum söluna, svaraði hann: "Ég hef litið á teikningar af leikvanginum. Hann er tilbúinn til byggingar og það eru yfirgnæfandi fjárhagsleg rök fyrir tilvonandi kaupendur að halda áfram með leikvanginn. Bjóðendurnir væru vitlausir að hrinda byggingu leikvangsins ekki í framkvæmd og það er eitthvað sem verður rætt um í viðræðunum. Þú færð ekki að kaupa félagið ef þú ert ekki reiðubúinn að gangast að þessu."
Mikil örvænting, spenna eða kvíði er í hugum stuðningsmanna Liverpool þessa dagana þar sem liðið þarf styrkingu í sumar til að bæta dapran árangur liðsins á næstu leiktíð. Þá hefst umræðan um hversu mikið fjármagn Rafael Benítez mun fá til leikmannakaupa í sumar en vegna skulda félagsins og vegna sölu á félaginu þá óttast margir að lítið sem ekkert fjármagn verði til í sumar - Broughton segir fjármagn vera til staðar til uppbyggingu liðsins: "Það verða peningar til leikmannakaupa en auðvitað ætla ég ekki að fara út í hversu mikið það verður. Aðal málið er að þetta mun gera gæfumun. Þetta mun sýna að staðan á eignarhaldinu sé á uppleið. Og ég held að þetta hefur hangið yfir félaginu á marga vegu varðandi eignarhaldið, skuldstöðuna og svo frammvegis. Þetta mun skýra það, svo það verður mjög góður hlutur fyrir félagið."
Sú staðreynd að Broughton er ársmiðaeigandi hjá Chelsea hefur eflaust hrætt einhverja stuðningsmenn Liverpool en þó hann sé stuðningsmaður Chelsea þá segist hann ætla að gera það besta fyrir Liverpool því hann er mikill íþróttaáhugamaður: "Ég er íþróttaáhugamaður og mjög mikill áhugamaður um knattspyrnu. Liverpool er stofnun í ensku Úrvalsdeildinni og er lykilhluti af deildinni. Þetta hefur verið frábært félag og það heldur áfram að vera frábært félag. Það þarf líka að vera frábært félag og ég er ákveðinn í að vinna að því að svo verði."
Hér er viðtal við nýja stjórnarformanninn af vefsíðu BBC.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

