| Sf. Gutt
Varalið Liverpool tapaði sínum þriðja leik í röð í gærkvöldi þegar liðið laut í gras 3:1 fyrir Burnley á Turf Moor. Nú eru möguleikar á deildarsigri svo til úr sögunni. Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn í vörn Liverpool.
Liverpool byrjaði vel og Daninn Nikola Saric, sem er hér á mynd, hefði átt að skora strax í byrjun en hann skaut hárfínt framhjá frá vítateig eftir góða sókn. Heimamenn svöruðu þessu af krafti og skoruðu í tvígang með stuttu millibili. Bæði mörkin komu af stuttum færum eftir hornspyrnur og var Daninn Martin Hansen ekki sannfærandi í marki Liverpool þegar mörkin komu. Fyrst skoraði Alex MacDonald og svo Frederic Nimani. Heimamenn voru þar með komnir í 2:0 og aðeins tíu mínútur liðnar.
Liverpool komst aftur inn í leikinn á 20. mínútu. David Amoo braust þá upp hægra megin og sendi fyrir á Nikola sem skoraði laglega. Ekki löngu seinna vildu leikmenn Liverpool fá víti þegar það virtist hafa verið brotið á Nikola. Rétt fyrir leikhlé bætti Burnley aftur við forystu sína. Frederic Nimani slapp í gegn og skoraði af öryggi. Staðan orðin 3:1 og þannig var hún í leikhléi. Lengi vel gerðist lítið í síðari hálfleik. Liverpool reyndi að klóra í bakkann og Nicolaj Kohlert skallaði framhjá úr góðu færi. David átti skalla í þverslá en heimamenn höfðu öll ráð og unnu.
Þriðja tap Liverpool í röð varð því staðreynd. Það er kannski ekki undarlegt að liðið hafi misst taktinn frá því það lék 15 leiki í röð án taps því margir lykilmenn liðsins hafa verið lánaðir frá áramótum. Nú síðast Peter Gulacsi og Jay Spearing. Þetta hefur valdið því að þjálfarinn John McMahon hefur þurft að nota marga óreynda leikmenn úr unglingaliðinu. Eins hefur ekki hjálpað til að liðið hefur þurft að spila mjög þétt núna upp á síðkastið.
Liverpool: Martin Hansen, Steven Irwin, Alex Cooper, Guðlaugur Victor Pálsson, Chris Mavinga, Francisco Duran (Nicolaj Kohlert 58. mín.) Nikola Saric (Jordy Brouwer 71. mín.), David Amoo, Gerardo Bruna, Damien Plessis og Alex Kacaniklic (Lauri Dalla Valle 65. mín.). Ónotaðir varamenn: Deale Chamberlain og Jakub Sokolik.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: David Amoo. Hann var hættulegasti leikmaður Liverpool og kraftmiklir sprettir hans ollu Burnley vanda.
Nú er að vona að aðalliði Liverpool vegni betur á Turt Moor en liðið spilar þar um næstu helgi.
Hér er staðan í varaliðsdeildinni.
TIL BAKA
Þriðja tapið í röð!
Varalið Liverpool tapaði sínum þriðja leik í röð í gærkvöldi þegar liðið laut í gras 3:1 fyrir Burnley á Turf Moor. Nú eru möguleikar á deildarsigri svo til úr sögunni. Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn í vörn Liverpool. Liverpool byrjaði vel og Daninn Nikola Saric, sem er hér á mynd, hefði átt að skora strax í byrjun en hann skaut hárfínt framhjá frá vítateig eftir góða sókn. Heimamenn svöruðu þessu af krafti og skoruðu í tvígang með stuttu millibili. Bæði mörkin komu af stuttum færum eftir hornspyrnur og var Daninn Martin Hansen ekki sannfærandi í marki Liverpool þegar mörkin komu. Fyrst skoraði Alex MacDonald og svo Frederic Nimani. Heimamenn voru þar með komnir í 2:0 og aðeins tíu mínútur liðnar.
Liverpool komst aftur inn í leikinn á 20. mínútu. David Amoo braust þá upp hægra megin og sendi fyrir á Nikola sem skoraði laglega. Ekki löngu seinna vildu leikmenn Liverpool fá víti þegar það virtist hafa verið brotið á Nikola. Rétt fyrir leikhlé bætti Burnley aftur við forystu sína. Frederic Nimani slapp í gegn og skoraði af öryggi. Staðan orðin 3:1 og þannig var hún í leikhléi. Lengi vel gerðist lítið í síðari hálfleik. Liverpool reyndi að klóra í bakkann og Nicolaj Kohlert skallaði framhjá úr góðu færi. David átti skalla í þverslá en heimamenn höfðu öll ráð og unnu.
Þriðja tap Liverpool í röð varð því staðreynd. Það er kannski ekki undarlegt að liðið hafi misst taktinn frá því það lék 15 leiki í röð án taps því margir lykilmenn liðsins hafa verið lánaðir frá áramótum. Nú síðast Peter Gulacsi og Jay Spearing. Þetta hefur valdið því að þjálfarinn John McMahon hefur þurft að nota marga óreynda leikmenn úr unglingaliðinu. Eins hefur ekki hjálpað til að liðið hefur þurft að spila mjög þétt núna upp á síðkastið.
Liverpool: Martin Hansen, Steven Irwin, Alex Cooper, Guðlaugur Victor Pálsson, Chris Mavinga, Francisco Duran (Nicolaj Kohlert 58. mín.) Nikola Saric (Jordy Brouwer 71. mín.), David Amoo, Gerardo Bruna, Damien Plessis og Alex Kacaniklic (Lauri Dalla Valle 65. mín.). Ónotaðir varamenn: Deale Chamberlain og Jakub Sokolik.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: David Amoo. Hann var hættulegasti leikmaður Liverpool og kraftmiklir sprettir hans ollu Burnley vanda.
Nú er að vona að aðalliði Liverpool vegni betur á Turt Moor en liðið spilar þar um næstu helgi.
Hér er staðan í varaliðsdeildinni.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

