L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
19.04.2010 10:04
|
Ólafur Haukur Tómasson
Kelly vill stöðu Johnson
Martin Kelly kom fyrst í sviðsljósið þegar hann kom inn á sem skiptimaður í Meistaradeildarleik gegn PSV Eindhoven á síðustu leiktíð og var á varamannabekknum í leikjunum gegn Marseille og Real Madrid. Kelly þótti standa sig með sóma og var á bekknum í nokkrum leikjum aðalliðsins á þessari leiktíð. Hann byrjaði sinn fyrsta leik í Meistaradeildarleiknum gegn Lyon og þótti hann standa sig frábærlega í þeim leik en hann varð fyrir því óláni lenda í meiðslum sem hafa hrjáð hann í allan vetur.
Hann er þó kominn aftur á ról og búinn að koma inn á í tveimur leikjum, gegn Portsmouth og Unirea, og verið oft á bekknum. Nú eru hann og Glen Johnson báðir að komast í toppform en þeir eru að berjast um hægri bakvarðarstöðuna. Kelly er hæst ánægður að fá að læra af leikmanni eins og Johnson en ætlar sér þó að eigna sér stöðu hans.
"Sem ungur leikmaður þá er ekki betri hægri bakvörður í landinu að læra af heldur en Glen Johnson. Eiginleikar hans til að verjast og sækja er frábært. Síðan hann kom til félagsins hef ég lært mikið af honum. Hann er opinn náungi og hann er alltaf að hjálpa mér, allir leikmenn hrífast af honum því hann er aðgengileg persóna. Það verður erfitt að taka stöðu hans í liðinu en ég verð að reyna. Á næstu tólf mánuðum vill ég setja hann undir eins mikla pressu og mögulegt er og nýta tækifæri mín þegar þau koma í kjölfarið." sagði Kelly.
Leikir Kelly með aðalliðinu hefðu líklega án nokkurs vafa orðið fleiri hefði hann ekki meiðst á sama tíma og Glen Johnson en á meðan voru þeir Javier Mascherano, Jamie Carragher og Philipp Degen sem sáu að mestu um að manna hægri bakvarðarstöðuna.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir