L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
17.04.2010 11:04
|
Grétar Magnússon
Frábært að fá Skrtel aftur
Sammy Lee telur að endurkoma Martin Skrtel muni gefa liðinu góða innspýtingu nú þegar stutt er eftir af tímabilinu. Slóvakinn hefur ekki spilað síðan hann braut bein í fæti í leik í febrúar.
,,Hann var úti að hlaupa á föstudaginn og það er í fyrsta sinn síðan hann meiddist sem hann hefur gert það þannig að hann er að bæta sig. En það verður smá tími þangað til að hann mun spila aftur," sagði Lee í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins.
,,Það er bara gott að sjá hann úti á vellinum aftur. Þegar hann byrjar að spila aftur þá verður það gott fyrir okkur. Þegar maður er kominn á þetta stig á tímabilinu þarf maður að hafa alla heila og klára."
Lee segist einnig vera ánægður með spilamennsku Glen Johnson nýlega og að hægri bakvörðurinn sé farinn að sýna mátt sinn og megin í rauðu treyjunni.
,,Hann er að bæta sig, svo mikið er víst, og það er alltaf hægt að bæta sig hjá þessu félagi," bætti Lee við. ,,Þegar maður vill ekki bæta sig stendur maður í stað. Glen er frábær drengur og er alltaf viljugur að bæta sig."
,,Hann lenti í slæmum meiðslum sem héldu honum frá keppni í nokkurn tíma en hann er greinilega að komast í sitt rétta form. Hann hefur mikla orku, ferska fætur og hann sækir fram. Hann hefur getur alltaf átt góðar sendingar sem leiða til þess að við skorum og hann hefur líka hæfileikann til að skora sjálfur."
,,Það er erfitt að stöðva hann þegar hann er upp á sitt besta og verst vel. Það mun meira koma frá okkur öllum hjá þessu félagi og hér er ekki hægt að standa í stað."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir