| Sf. Gutt

Til hamingju með daginn!

Rafael Benítez, framkvæmdastjóri Liverpool, á stórafmæli í dag. Fyrir fimmtíu árum fæddist hann í Madríd á Spáni og hann er því fimmtugur. Rafael eyddi þó ekki afmælisdeginum í neinar stórveislur. Hann stússaðist í daglegum verkum sínum og sat til dæmis, venju samkæmt á föstudegi, fyrir svörum á blaðamannafundi. Hvað sem segja má um Rafael Benítez þá er hann harðduglegur og samviskusamur.

Rafael Benítez var skipaður framkvæmdastjóri Liverpool daginn fyrir þjóðhátíðardag Íslendinga árið 2004. Ekki er vitað hversu lengi hann verður við stjórn félagsins en ef rétt er munað þá á hann fjögur ár eftir af núgildandi samningi sínum við Liverpool.





























 
Til hamingju með afmælið Rafael!
 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan