| Sf. Gutt

Peter lánaður yfir ána

Liverpool hefur lánað ungverska markmanninn Peter Gulacsi. Hann fór þó ekki um langan veg. Peter var lánaður yfir Mersey ána til Tranmere Rovers. Um var að ræða svokallað neyðarlán. Peter á bara að vera í láni í eina viku. 

Peter fór beint í byrjunarlið Tranmere sem vann mikilvægan 3:1 sigur á Exeter í gær. Leikurinn fór fram á Prenton Park en þar þekkir Peter vel til vegna þess að varalið Liverpool spilar heimaleiki sína þar.

Tranmere Rovers á í harðri fallbaráttu í þriðju deild af þeim fjórum sem teljast til atvinnudeilda á Englandi.  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan