| Ólafur Haukur Tómasson
Er Liverpool keypti Glen Johnson í sumar hafði hann unnið sig inn sem fasta maður í varnarlínu Englendinga og sannað sig sem einn af færustu bakvörðum ensku Úrvalsdeildarinnar, það kom því kanski ekki á óvart að Liverpool skyldi festa kaup á þessum öfluga leikmanni síðastliðið sumar en kaupverðið á leikmanninum er talið vera sautján milljónir punda með alls konar gerðum af afborgunum og þurkunum skulda.
Hann vakti hrifningu stuðningsmanna Liverpool í fyrsta deildarleik sínum er hann fiskaði vítaspyrnu sem Steven Gerrard skoraði úr. Til að bæta um betur skoraði hann og lagði upp í fyrsta leik sínum á Anfield, markið skoraði hann með bakfallsspyrnu og nokkrum leikjum síðar skoraði hann aftur með góðu skoti. Loksins var Liverpool komið með sókndjarfan bakvörð sem gat ógnað af kantinum, það kunnu flestir vel að meta.
Frammistöður hans fram að áramótum voru þó ekki alveg jafn áberandi og þessar en hann átti nokkra mjög góða leiki inn á milli. Á síðasta leik ársins 2009 var hann borinn af leikvelli á 89. mínútu í leik gegn Aston Villa og snéri hann ekki aftur á völlinn fyrr en í miðjum mars. Síðan þá hefur hann smám saman náð sér á strik. Hann skoraði aftur glæsilegt mark í sigurleiknum á Sunderland ásamt því að leggja upp annað mark Fernando Torres með frábærri stungusendingu, hann virðist því vera nálægt því að vera kominn í það form sem hann hóf leiktíðina á - eða svo telur hann.
"Ég er augljóslega að komast í betra og betra form með hverjum leik eftir meiðslin. Þegar maður hefur verið svona lengi frá þá er augljóslega erfitt að taka upp þar sem frá var horfið því leikformið manns hverfur og maður þarf leiki til að ná því aftur. Með hverjum leik sem ég spila þá líður mér betur og betur." sagði Johnson.
Johnson líkt og Steven Gerrard verður líklegast í eldlínunni með enska landsliðinu á Heimsmeistaramótinu sem hefst í sumar en þangað til er vonandi að hann nái að enda sem Evrópudeildarmeistari með Liverpool og hjálpi Liverpool að ná því sem virðist ómögulegt þessa stundina, að enda í Meistaradeildarsæti.
TIL BAKA
Johnson kominn á ról
Er Liverpool keypti Glen Johnson í sumar hafði hann unnið sig inn sem fasta maður í varnarlínu Englendinga og sannað sig sem einn af færustu bakvörðum ensku Úrvalsdeildarinnar, það kom því kanski ekki á óvart að Liverpool skyldi festa kaup á þessum öfluga leikmanni síðastliðið sumar en kaupverðið á leikmanninum er talið vera sautján milljónir punda með alls konar gerðum af afborgunum og þurkunum skulda.Hann vakti hrifningu stuðningsmanna Liverpool í fyrsta deildarleik sínum er hann fiskaði vítaspyrnu sem Steven Gerrard skoraði úr. Til að bæta um betur skoraði hann og lagði upp í fyrsta leik sínum á Anfield, markið skoraði hann með bakfallsspyrnu og nokkrum leikjum síðar skoraði hann aftur með góðu skoti. Loksins var Liverpool komið með sókndjarfan bakvörð sem gat ógnað af kantinum, það kunnu flestir vel að meta.
Frammistöður hans fram að áramótum voru þó ekki alveg jafn áberandi og þessar en hann átti nokkra mjög góða leiki inn á milli. Á síðasta leik ársins 2009 var hann borinn af leikvelli á 89. mínútu í leik gegn Aston Villa og snéri hann ekki aftur á völlinn fyrr en í miðjum mars. Síðan þá hefur hann smám saman náð sér á strik. Hann skoraði aftur glæsilegt mark í sigurleiknum á Sunderland ásamt því að leggja upp annað mark Fernando Torres með frábærri stungusendingu, hann virðist því vera nálægt því að vera kominn í það form sem hann hóf leiktíðina á - eða svo telur hann.
"Ég er augljóslega að komast í betra og betra form með hverjum leik eftir meiðslin. Þegar maður hefur verið svona lengi frá þá er augljóslega erfitt að taka upp þar sem frá var horfið því leikformið manns hverfur og maður þarf leiki til að ná því aftur. Með hverjum leik sem ég spila þá líður mér betur og betur." sagði Johnson.
Johnson líkt og Steven Gerrard verður líklegast í eldlínunni með enska landsliðinu á Heimsmeistaramótinu sem hefst í sumar en þangað til er vonandi að hann nái að enda sem Evrópudeildarmeistari með Liverpool og hjálpi Liverpool að ná því sem virðist ómögulegt þessa stundina, að enda í Meistaradeildarsæti.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

