| Grétar Magnússon

Agger: ,,Ég get bætt mig"

Daniel Agger telur að hann geti sýnt á sér betri hliðar og bætt sig frekar sem leikmaður til að hjálpa liðinu í lokaleikjum tímabilsins.

Agger hefur verið hrósað undanfarið fyrir góða leiki í hjarta varnarinnar en það eina sem hann hugsar um núna eru þrjú stig gegn Birmingham í dag, páskadag.

Liverpool á sex leiki eftir í deildinni og hafa ekki efni á því að tapa fleiri stigum í baráttunni um fjórða sætið.  Þrátt fyrir að hafa spilað allan tímann í erfiðum útileik gegn Benfica í Evrópudeildinni segir Agger sjálfstraustið sé enn gott í herbúðum liðsins.

,,Við erum með góðan hóp og komumst yfir þetta," sagði Agger.  ,,Hvað mig sjálfan varðar þá er ég alltaf að bæta mig, formið er að batna og maður getur alltaf orðið betri.  Eftir hvern leik þarf maður alltaf að horfa til baka og gagnrýna sjálfan sig."

,,Það er alltaf mikilvægt að spyrja sig hvað maður hefði getað gert betur.  Hefði ég getað gert þetta öðruvísi ?  Það er eina leiðin til að bæta sig og sjá til þess að frammistaða manns haldist góð.  Við vitum hvert takmarkið er og við höfum trú á því að við getum náð því."

,,En þið vitið jafnvel og ég að þegar maður setur sér markmið þá nær maður þeim ekki alltaf.  Við verðum að halda áfram að vinna ef við ætlum að ná því.  Við þurfum frammistöðu eins og gegn Sunderland til að hjálpa okkur í baráttunni.  Við spiluðum hver fyrir annan og vildum ná sigri til að komast upp töfluna.  Að halda markinu hreinu hjálpar alltaf og nú verðum við að halda í trúna."

,,Stundum ganga hlutirnir upp og stundum ekki en mér fannst eftir frammistöðuna í fyrri hálfleik við sleppa aðeins takinu af leiknum í síðari hálfleik en því verður ekki breytt héðan af.  Við verðum að horfa fram á við og gera okkar besta í þessum síðustu vikum."

Agger skoraði gott mark gegn Benfica með skemmtilegri hælspyrnu og hann bætti við:  ,,Ég naut þess að skora.  Það var nú líka kominn tími til.  Þetta var ekki ólíkt markinu árið 2007 (gegn Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildarinnar); kannski ekki eins gott mark en keimlíkt.  Mér er sama hver skorar gegn Birmingham, svo lengi sem við berjumst saman og náum sigri."

Agger hefur einnig fulla trú á því að leikmennirnir geti bætt fyrir vonbrigðin í Portúgal þegar þeir mæta Benfica á Anfield á fimmtudagskvöldið næsta.

,,Getum við náð góðum úrslitum og komist áfram gegn Benfica í seinni leiknum ? Klárlega," bætir hann við.  ,,Þegar maður horfir á spilamennsku okkar og hvernig við lögðum hart að okkur, veit maður að allt getur gerst með þetta lið.  Það hefði verið betra að koma heim með 1-0 sigur en við getum alveg sætt okkur við 2-1 og okkur hlakkar til leiksins á Anfield."

,,Við vissum að þeir myndu vera meira með boltann þegar við misstum mann af velli en þeir sköpuðu sér ekki það mörg færi.  Ég man ekki eftir því að Reina hafi þurft að verja mikið.  En þeir fengu mjög mikið af auðveldum aukaspyrnum."

,,Það var erfitt að spila eftir að Ryan var rekinn af velli en mér fannst við gera vel.  Það sem ég skildi ekki var að fimm dómarar voru að dæma þennan leik en enginn þorði að taka ákvörðun.  Ég er þá ekki að tala um vítaspyrnurnar, heldur aðra hluti.  Við byrjuðum leikinn mjög vel og það var svekkjandi að fá á sig þessi mörk."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan