Forsíða

Frétt

03.04.2010 16:04 | Sf. Gutt

Ryan biðst afsökunar

Ryan Babel hefur beðið félaga sína afsökunar á því að vera rekinn af leikvelli gegn Benfica. Hann segist ekki ætla að ganga í svona gildru aftur eins og þá sem hann féll í á Ljósvangi.

,,Ég er búinn að tala við strákana og biðjast afsökunar. Mér finnst ég eiga sök á tapinu en liðið á hrós skilið fyrir að standa sig vel eftir að við vorum orðnir 10. Ég ætla að draga lærdóm af þessum mistökum og ég mun ekki gera neitt þessu líkt aftur."

Mörgum finnst sænski dómarin hafa hlaupið á sig með því að reka Ryan af velli. Ryan sjálfum fannst brottreksturinn strangur.

,,Mér fannst dómurinn of harður. Það var kannski heimskulegt hjá mér að snerta hann í framan en mér hefði fundist að gult spjald verið sanngjart. En hvað get ég gert ef reglurnar eru svona?"

Ryan Babel er nú kominn í leikbann og hann spilar því ekki með Liverpool í seinni leiknum við Benfica á Anfield Road.






Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan
  • EJS hýsir vefinn okkar