| Sf. Gutt

Varalið nálgast toppinn

Varalið Liverpool nálagðist topp deildarinnar í kvöld þegar það náði að vinna Bolton Wanderes 2:1. Guðlaugur Victor Pálsson var í liði Liverpool eins og venjulega í síðustu leikjum. Hann var miðvörður og lék allan leikinn. John McMahon stillti upp sterku liði og fjórir í byrjunarliðinu hafa leikið með aðalliðinu. Nabil El Zhar hóf leikinn og David Ngog leysti hann af í leikhkléi. Báðir tóku þátt í sigri Liverpool á Sunderland í gær.

Heimamenn byrjuðu betur og Ungverjinn Peter Gulacsi hafði í nógu að snúast í marki Liverpool. Hann varði vel frá Michael O´Halloran snemma leiks. Liverpool fékk gott færi eftir snögga sókn eftir tíu mínútur en Nabil El Zhar skaut rétt framhjá. David Amoo skallaði svo framhjá litlu síðar. Á 21. mínútu varði Peter glæsilega þegar hann stöðvaði fasta aukaspyrnu Aaron Mooy með tilþrifum. Aaron ógnaði aftur eftir hálftíma en Peter sá aftur við honum. Ekkert mark hafði verið skorað þegar leikhlé var tekið.

Snemma í síðari hálfleik hefði Bolton átt að skora. Peter varði þá fast skot en náði ekki að halda boltanum. Þrír leikmenn Bolton gátu komið boltanum í markið en Steven Irwin náði að bjarga. Bæði lið áttu færi þar til Liverpool komst yfir á 72. mínútu. Liverpool sótti þá upp vinstri kantinn. Skotinn ungi Alex Cooper kom boltanum fyrir markið á David Ngog sem skoraði af örstuttu færi. Gott mark og vel þegið fyrir franska strákinn.

Liverpool bætti við forskot sitt á 78. mínútu. Gerardo Bruna sendi þá aukaspyrnu fyrir markið frá hægri. Rétt fyrir framan markið fór boltinn í Rhys Bennett fyrirliða Bolton, þar sem hann var aðþrengdur af David, og í markið. Liverpool hafði nú leikinn í hendi sér en á lokamínútunni fengu heimamenn svolitla von. Zoltan Harsanyi skoraði þá af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá vinstri. Rétt á eftir svaf Guðlaugur á verðinum og einn leikmaður Bolton náði skoti sem fór rétt yfir. Liverpool hafði því harðsóttan sigur.

Eftir sigurinn er Liverpool þremur stigum á eftir Manchester United sem heldur efsta sætinu. Liverpool hefur leikið tveimur færri leiki og stendur vel að vígi.

Liverpool: Peter Gulacsi, Steven Irwin, Chris Mavinga (Alex Cooper 66. mín.), Daniel Ayala, Guðlaugur Victor Pálsson, Dani Pacheco, Nabil El Zhar (David Ngog 46. mín.), David Amoo, Lauri Dalla Valle (Jordy Brouwer 54. mín.), Damien Plessis og Gerardo Bruna. Varamenn: Chris Oldfield og Nikolaj Kohlert.

Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Peter Gulacsi. Hann varði hvað eftir annað vel og stuðlaði þannig að mikilvægum sigri.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan