| Sf. Gutt

Albert Riera úti í kuldanum!

Albert Riera kom sér á kaldan klaka í síðustu viku með því að gagnrýna Rafael Benítez harðlega. Hann lét þá ýmislegt flakka í viðtali við spænska útvarpsstöð. Albert sagði samskipti Rafael Benítez við leikmenn sína varla fyrir hendi og sagðist engar skýringar hafa fengið á því, frá framkvæmdastjóra sínum, hvers vegna hann hefði fengið svona lítið að spila með liði Liverpool á þessu keppnistímabili. Hann taldi engar aðrar skýringar á því aðrar en þær að Rafael líkaði illa við sig persónulega. Albert hnykkti svo á öllu saman með því að segja ástandið á Liverpool slæmt og líkti liðinu við sökkvandi skip.
 
Albert hefði varla getað valið verri tíma fyrir þetta upphlaup sitt því þessi gusa kom í fjölmiðla daginn sem Liverpool lék við Lille í Evrópudeildinni í síðustu viku. Albert fékk líka refsingu sem þótti hæfa. Hann var settur í æfingabann og sektaður duglega. 

Albert, sem hefur ekki náð sér á strik á þessu keppnistímabili, reyndi fljótlega að draga úr og lét hafa þetta eftir sér. ,,Ég er mjög ánægður með að vera hjá Liverpool og ég myndi gjarnan vilja vera áfram hjá hjá félaginu ef ég fengi að spila. Það er nefnilega frábært að spila knattspyrnu hérna. En ef ég fæ ekkert að spila á ég enga möguleika á að komast í Heimsmeistarakeppnina."

Spánverjinn gæti nú verið á förum eftir allt þetta fjaðrafok. Rússnesk félög geta keypt leikmenn á þessum árstíma og bæði liðin í Moskvu, CSKA og Spartak eiga að hafa áhuga á spænska útherjanum. Í einhverjum fjölmiðlum er því haldið fram að forráðamenn Liverpool hafi rætt við þessi rússnesku félög. Sjálfur sagði Albert í viðtali við rússneskt dagblað að hann vonaðist til að hann kæmist að hjá þarlendu liði áður en þessi vika rennur sitt skeið.

Albert Riera hefur leikið 56 leiki með Liverpool og skorað fimm mörk. Hvort þessar tölur eiga eftir að hækka kemur væntanlega fljótlega í ljós.

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan