Til hamingju með daginn!
Hvernig væri að baka eina rjómatertu og skella eitthundrað og átján afmæliskertum á hana í tilefni dagsins? Það er reyndar kannski svolítið erfitt að koma svo mörgum kertum fyrir á einni tertu. Það verður bara að hafa hana stóra! Liverpool á nefnilega nokkurs konar afmæli í dag.
Everton hafði leikið á Anfield Road frá árinu 1884. Forráðamönnum félagsins þótti leigan, sem þeir borguðu fyrir afnot af vellinum of há, og þann 12. mars 1892 var haldinn fundur um málið. Forsvarsmenn Everton neituðu að borga uppsetta leigu til vallareigandans og hættu þar með að leika á Anfield Road. Sem betur fer! Þann 15. mars var aftur haldinn fundur þar sem eigandi Anfield Road John Houlding, ákvað ásamt nokkrum öðrum stuðningsmönnum sínum, að stofna knattspyrnulið til að leika á Anfield. Liðið sem John og samstarfsaðilar hans stofnuðu hlaut nafnið Liverpool Association Football Club. Fáir hafa unnið gagnlegri verk hvað knattspyrnu varðar. Sigursælasta knattspyrnulið í sögu enskrar knattspyrnu var fætt.
Það er kannski erfitt að ákveða einn ákveðinn dag sem stofndag félagsins en þessir atburðir sem hér er lýst að framan leiddu til stofnunnar félagsins. Til að rifja betur upp atburðina sem leiddu til stofnunnar félagsins okkar þá væri ekki úr vegi að líta við í söguhorni Liverpool.is. Þú finnur það hér.
You'll never walk alone
When you walk through a storm,
Hold your head up high,
And don't be afraid of the dark.
At the end of a storm,
There's a golden sky,
And the sweet silver song of a lark.
Walk on through the wind,
Walk on through the rain,
Though your dreams be tossed and blown..
Walk on, walk on, with hope in your heart,
And you'll never walk alone....
Walk on, walk on, with hope in your heart,
And you'll never walk alone....
You'll never walk alone.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

