Forsíða

Frétt

13.03.2010 17:03 | Sf. Gutt

David Martin lánaður í þriðja sinn

Liverpool hefur lánað markmanninn David Martin í þriðja sinn á þessu keppnistímabili. Nú er hann kominn til Derby County og verður þar næsta mánuðinn. Áður var hann í láni hjá Tranmere Rovers og Leeds United. 

David, sem hefur leikið með undir 20 ára landsliði Englands, lék í fyrsta sinn með þriðja liðinu í dag. Ekki gekk nú allt að óskum því Derby tapaði 2:1 á útivelli fyrir Doncaster.

David Martin hefur 19 sinnum verið á varamannabekk aðalliðs Liverpool en aldrei á þessu keppnistímabili.


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin