Eins og flestum ætti að vera kunnugt um, þá verður árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi haldin hátíðleg þann 20. mars nk. Í tilefni þess þá mun samstarfsaðili klúbbsins bjóða upp á glæsilegar áritaðar myndir tengdar Liverpool FC og geta lesendur liverpool.is pantað sér slíkar. Hér að neðan má sjá þær myndir sem í boði eru, stærðir og verð á hverri og einni. Pantanir þurfa að hafa borist fyrir klukkan 20:00 í dag, mánudaginn 15.mars.
Þeir sem hafa áhuga á að panta sér svona gripi geta sent póst á ssteinn@liverpool.is, þar sem menn verða að gefa upp fullt nafn, hvaða mynd/myndir þeir vilja og símanúmer. Myndirnar verða svo afhentar á heimavelli Liverpoolklúbbsins á Íslandi, Players í Kópavogi, á leik Man.Utd og Liverpool þann 21. mars nk. Búi viðkomandi úti á landi, þá tilgreina menn það í póstinum og við finnum út hvernig afhendingu og greiðslu verður háttað.
Allar myndir eru seldar án ramma og með sönnun um rétta áritun.

Ron Yeats: (10x8”)
Verð: 4.000
Phil Thompson með Evrópubikarinn: (16x12”)
Verð: 5.000
Alan Kennedy úrslitavíti: (16x12”)
Verð: 5.000
Alan Kennedy með Evrópubikarinn: (16x12”)
Verð: 6.000
Ian Rush skorar í bikarúrslitum á Wembley: (16x12”)
Verð: 7.000
Phil Neal og Jimmy Case með Evrópubikarinn: (16x12”)
Verð: 10.000
Kevin Keegan og Tommy Smith fagna: (15x12”)
Verð: 11.000
King Kenny með Evrópubikarinn: (16x12”)
Verð: 17.000
King Kenny fagnar FA Cup sigri á Everton: (16x12”)
Verð: 17.000
Fernando Torres: (16x12”)
Verð: 18.000
Evrópumeistarar 1977 árituð af 10 leikmönnum, Keegan, McDermott, Fairclough, Johnson, Clemence, Callaghan, Heighway, Jones, Neal og Case: (16x12”)
Verð: 30.000