L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
10.03.2010 17:03
|
Sf. Gutt
Liverpool í úrslit!
Liverpool komst í dag í úrslitaleikinn um Liverpool bikarinn eftir 3:0 sigur á Tranmere Rovers í undanúrslitum. Liðið á því möguleika á að verja þennan titil sem vannst á síðasta keppnistímabili. Liverpool mætir annað hvort Everton eða Skelmersdale þegar leikið verður til úrslita í Liverpool Senior Cup keppninni eins og hún heitir á frummálinu.
Varalið Liverpool hefur haft lítið við að vera, annað en æfingar, það sem af er árins vegna þess að slag í slag hefur leikjum liðsins verið frestað vegna harðinda. Þetta var til dæmis fyrsti leikur liðsins frá því á fyrsta degi febrúar.
John McMahon, þjálfari Liverpool, þekkti vel til mótherjanna enda vann hann lengi hjá Tranmere og kannski hafði það sitt að segja því Liverpool náði strax undirtökum í leiknum en það var ekki fyrr en á 42. mínútu sem fyrsta markið kom. Góð sókn endaði með því að David Amoo átti skot sem Joe Collister varði. Hann hélt ekki boltanum og Lauri Dalla Valle var snöggur til og smellti boltanum í markið úr mjög þröngu færi. Vel gert hjá finnska stráknum sem lítið hefur leikið á þessu keppnistímabili vegna meiðsla.
Það hljóp á snærið hjá Liverpool í upphafi síðari hálfleiks þegar Aaron Cresswell var rekinn af velli eftir grimma tæklingu á Steven Irwin. Liverpool hafði nú öll ráð Tranmere í hendi sér og David Amoo kom Liverpool í 2:0 með góðu skoti frá vítateig eftir rúmlega klukkutíma leik. Enn jókst munurinn seint í leiknum. Lauri sendi á Jay Spearing sem sendi fyrir markið og í markinu lá boltinn eftir að einn leikmanna Tranmere stýrði boltanum í eigið mark. Góður sigur Liverpool og sæti í úrslitaleiknum er í höfn. Vonandi tekst að vinna hann og verja titilinn. Það veitir sannarlega ekki af einhverri gleði á þessu keppnistímabili.
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn. Það er fínt að sjá hann aftur í byrjunarliði varaliðsins en hann hefur ekki átt fast sæti í því á þessari leiktíð.
Liverpool:
Peter Gulacsi, Steven Irwin, Chris Mavinga (Francisco Duran 73. mín.), Daniel Ayala, Guðlaugur Victor Pálsson, Jay Spearing, Nikola Saric (Gerardo Bruna 45. mín.), David Amoo (Nikolaj Kohlert 77. mín.), Lauri Dalla Valle, Damien Plessis og Alex Kacaniklic. Ónotaðir varamenn: Martin Hansen, Nikolaj Kohlert, og Jordy Brouwer.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv:
Jay Spearing. Fyrirliðinn átti góðar sendingar og var duglegur.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld