Forsíða

Frétt

07.03.2010 01:03 | Sf. Gutt

Steven á að vera fyrirliði!

John Terry, fyrirliði Chelsea, missti fyrirliðastöðu sína hjá enska landsliðinu nú eftir áramótin eftir að upp komst um bresti hans. Fabio Capello landsliðsþjálfari setti Rio Ferdinand, leikmann Manchester United, sem fyrirliða í stað John.

Rio var ekki leikfær núna í vikunni þegar enskir mættu Afríkumeisturum Egypta og Fabio valdi Steven sem fyrirliða fyrir þann leik. England vann 3:1 og Seven stóð fyrir sínu.

Könnun, sem tímaritið Match of the day gerði, hefur nú sýnt að Steven Gerrard er best treyst til að bera fyrirliðabandið! Í könnuninni fékk Steven 39% atkvæða. Wayne Rooney, leikmaður Manchester United, kom annar með 29% en Rio Ferdinand fékk aðeins 15% atkvæða.

Þessar niðurstöður koma stuðningsmönnum Liverpool auðvitað ekkert á óvart!




Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin