L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
05.03.2010 12:03
|
Grétar Magnússon
Varla möguleiki á því að misstíga sig
Rafael Benítez segir baráttuna um fjórða sætið vera það harða að leikmenn sínir hafi nánast ekkert svigrúm til að misstíga sig einu sinni. Liðið situr nú í sjötta sæti deildarinnar stigi á eftir Tottenham og Manchester City og á síðarnefnda liðið leik til góða.
Aston Villa eru svo ekki langt fyrir neðan með tvo leiki til góða og Benítez veit að mistök á þessu stigi tímabilsins gætu reynst dýrkeypt.
Hann sagði: ,,Manchester City, Tottenham og Aston Villa verða hættuleg og við megum ekki gera nein mistök."
,,Við vitum að síðasta ár var mjög gott stigalega séð (86 stig) og núna erum við í annari og erfiðari stöðu vegna þess að væntingarnar voru mjög miklar."
,,Þetta er mjög erfitt því það eru þrjú eða fjögur lið sem eru mjög jöfn."
Nú um helgina er leiki í 8-liða úrslitum FA-Bikarsins sem þýðir að helstu keppinautar Liverpool eiga ekki deildarleik. Með sigri gegn Wigan á mánudagskvöldið gæti liðið því skotist upp í fjórða sætið.
,,Við verðum að halda áfram þessari spilamennsku og sanna, sýna öllum öðrum, að við erum nógu góðir," bætti Benítez við. ,,Ég vil vera jákvæður og við munum spila vel og halda áfram að sigra."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld