Þá er komið að því, árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi árið 2010 verður haldin á heimavelli klúbbsins, Players í Kópavogi, laugardagskvöldið 20. mars nk. Að vanda verður mikið um dýrðir og mikil og góð hefð hefur skapast um hana undanfarin ár. Húsið opnar klukkan 18:30, en borðhald hefst um klukkan 19:00.
Heiðurgestur kvöldsins:
Veislustjóri:
Sigurvin "Fíllinn" Jónsson
Upphitun:
Sigurjón Brink
Forréttur:
Sérríbætt sveppasúpa
Aðalréttur:
Lamba Rib Eye með kryddjurtasósu, bökuðum kartöflum og rótargrænmeti
Verð:
5.500
Að vanda verður happdrættið á sínum stað þar sem aðalvinningurinn verður ferð á Anfield á leik með Liverpool FC. Eins munu samstarfsaðilar klúbbsins í Liverpoolborg verða með svokallað "Silent Auction" þar sem gestir geta boðið í mjög svo dýrmæta áritaða muni frá núverandi og fyrrverandi leikmönnum liðsins.
Nú er ekkert annað að gera en að draga fram sparigallann, taka þátt í frábæru kvöldi með öðrum grjóthörðum Poolurum. Eins og áður sagði þá hefur verið uppselt á hátíðina undanfarin ár, og því um að gera að tryggja sér miða sem allra fyrst.
Hægt er að panta miða með því að senda tölvupóst sem inniheldur nafn, símanúmer & fjölda miða á arshatid@liverpool.is. Haft verður svo samband við viðkomandi til að ganga frá greiðslu.