L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
04.03.2010 00:03
|
Heimir Eyvindarson
Landsleikjafréttir
Fjölmargir leikmenn Liverpool voru í eldlínunni í landsleikjum kvöldsins í Evrópu. Yossi Benanyoun og Dirk Kuyt skoruðu báðir og tveir rauðir fyrirliðar leiddu lið sín til sigurs.
Yossi Benayoun skoraði mark í góðum 2-0 sigri Ísraela á Rúmenum á útivelli og Dirk Kuyt skoraði mark úr vítaspyrnu í 2-1 sigri Hollendinga á Bandaríkjamönnum í Amsterdam. Kuyt var síðan skipt út fyrir liðsfélaga sinn hjá Liverpool, Ryan Babel, á 80. mínútu leiksins.
Javier Mascherano fyrirliði Argentínu leiddi sína menn til 1-0 sigurs gegn Þjóðverjum í Munchen og Steven Gerrard bar fyrirliðabandið fyrir Englendinga sem sigruðu Egypta 3-1 í fjörugum leik á Wembley, eftir að hafa verið 0-1 undir í hálfleik. Þess má geta að gamli Rauðliðinn Peter Crouch kom inn á sem varamaður í leiknum og skoraði tvö góð mörk. Shaun Wright Phillips skoraði svo eitt mark.
Fernando Torres lék seinni hálfleikinn í 2-0 sigri Spánverja á Frökkum. Pepe Reina sat hinsvegar á bekknum allan leikinn.
Sotirios Kyrgiakos spilaði með Grikkjum gegn Senegal. Grikkland tapaði 2:0.
Ekki er vitað til þess að nokkur leikmanna Liverpool hafi orðið fyrir hnjaski í kvöldi og því er óhætt að segja að þessi landsleikjahrina hafi verið býsna góð fyrir okkar menn.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir