| Birgir Jónsson
Liverpool FC og Everton FC settust í dag niður til viðræðna við bæjaryfirvöld um nýjan völl. Einnig var búist við því að fulltrúar frá háskólanum í Liverpool myndu vera viðstaddir.
Framkvæmdarstjóri Liverpool, Christian Purslow, og kollegi hans hjá Everton, Robert Elstone, eru að reyna að finna lausn á sameiginlegu vandamáli liðanna sem bæði hafa velli sem eru ekki í takt við tímann. Búist var við því að þeir báðir mættu á fundinn. Það er talið að liðin muni láta háskólann sjá um arðsemiskönnun á möguleikunum í stöðunni.
Framkvæmdarstjóri Norðvesturþróunarskrifstofunnar, Steve Broomhead sagði: Við erum mjög ánægðir að þessi fundur á sér stað. Fólk er byrjað að horfa til möguleikana aftur. Bæði lið þurfa lausnir, annað hvort í sitthvoru lagi eða saman."
Bæði lið neituðu að tjá sig um fundinn.
Einn möguleiki sem gæti hafa verið til umræðu á fundinum er knattspyrnuhverfið, hugmynd frá stuðningsmannahópnum "Höldum Everton í borginni okkar". Hugmynd hópsins er að endurbyggja Goodison Park, með hóteli og öðrum framkvæmdum í Stanley Park sem myndu hjálpa til að fjármagna verkið.
Á öðrum meiði er skoðun leiðtoga verkamannaflokksins í Liverpool, Joe Anderson, sem skrifaði báðum liðum og lagði til að þau létu framkvæma arðsemiskönnun hjá bæjaryfirvöldum um möguleikann á sameiginlegum velli. Hann sagði að það yrði að komast að niðurstöðu, af eða á, í því máli.
Leiðtogi bæjarráðsins, Warren Bradley, hefur sagt að hann sé á þeirri skoðun að hugmyndin um knattspyrnuhverfi í kringum STanley Park sé frábær hugmynd.
Hugmyndum um sameiginlegan völl hefur alltaf verið hafnað af Liverpool. Liðið heldur enn í hugmyndir um nýjan, 400 milljón punda, 60.000 sæta völl í Stanley Park. Það er talið að liðið sé að leita að 100 milljónum punda til að hefja vinnuna, en enn sem komið er hefur það ekki tekist. Aðalverkefni Purslow er að byggja nýjan völl. Það hversu seint það gengur er talin aðalástæðan fyrir því að stuðningsmennirnir eru orðnir andsnúnir eigendunum Hicks og Gillett.
Stuðningsmenn Everton eru jafn óþreyjufullir að bíða eftir nýjum velli. Evertonmenn voru sendir aftur að teikniborðinu eftir að yfirvöld neituðu að samþykkja 400 milljón punda Tesco/Kirkby verkefnið. Það er talið að nú sé til skoðunar að endurvinna Goodison, þrátt fyrir að það hafi ávalt verið talið óhugsanlegt fjárhagslega. Það er einnig talið að Everton sé að leita sér að nýjum stað með bæjarráðinu. En engin þeirra staða sem ráðið hefur mælt með hefur verið talinn ákjósanlegur vegna kostnaðar.
TIL BAKA
Liverpool og Everton ræða enn um nýjan völl
Liverpool FC og Everton FC settust í dag niður til viðræðna við bæjaryfirvöld um nýjan völl. Einnig var búist við því að fulltrúar frá háskólanum í Liverpool myndu vera viðstaddir.Framkvæmdarstjóri Liverpool, Christian Purslow, og kollegi hans hjá Everton, Robert Elstone, eru að reyna að finna lausn á sameiginlegu vandamáli liðanna sem bæði hafa velli sem eru ekki í takt við tímann. Búist var við því að þeir báðir mættu á fundinn. Það er talið að liðin muni láta háskólann sjá um arðsemiskönnun á möguleikunum í stöðunni.
Framkvæmdarstjóri Norðvesturþróunarskrifstofunnar, Steve Broomhead sagði: Við erum mjög ánægðir að þessi fundur á sér stað. Fólk er byrjað að horfa til möguleikana aftur. Bæði lið þurfa lausnir, annað hvort í sitthvoru lagi eða saman."
Bæði lið neituðu að tjá sig um fundinn.
Einn möguleiki sem gæti hafa verið til umræðu á fundinum er knattspyrnuhverfið, hugmynd frá stuðningsmannahópnum "Höldum Everton í borginni okkar". Hugmynd hópsins er að endurbyggja Goodison Park, með hóteli og öðrum framkvæmdum í Stanley Park sem myndu hjálpa til að fjármagna verkið.
Á öðrum meiði er skoðun leiðtoga verkamannaflokksins í Liverpool, Joe Anderson, sem skrifaði báðum liðum og lagði til að þau létu framkvæma arðsemiskönnun hjá bæjaryfirvöldum um möguleikann á sameiginlegum velli. Hann sagði að það yrði að komast að niðurstöðu, af eða á, í því máli.
Leiðtogi bæjarráðsins, Warren Bradley, hefur sagt að hann sé á þeirri skoðun að hugmyndin um knattspyrnuhverfi í kringum STanley Park sé frábær hugmynd.
Hugmyndum um sameiginlegan völl hefur alltaf verið hafnað af Liverpool. Liðið heldur enn í hugmyndir um nýjan, 400 milljón punda, 60.000 sæta völl í Stanley Park. Það er talið að liðið sé að leita að 100 milljónum punda til að hefja vinnuna, en enn sem komið er hefur það ekki tekist. Aðalverkefni Purslow er að byggja nýjan völl. Það hversu seint það gengur er talin aðalástæðan fyrir því að stuðningsmennirnir eru orðnir andsnúnir eigendunum Hicks og Gillett.
Stuðningsmenn Everton eru jafn óþreyjufullir að bíða eftir nýjum velli. Evertonmenn voru sendir aftur að teikniborðinu eftir að yfirvöld neituðu að samþykkja 400 milljón punda Tesco/Kirkby verkefnið. Það er talið að nú sé til skoðunar að endurvinna Goodison, þrátt fyrir að það hafi ávalt verið talið óhugsanlegt fjárhagslega. Það er einnig talið að Everton sé að leita sér að nýjum stað með bæjarráðinu. En engin þeirra staða sem ráðið hefur mælt með hefur verið talinn ákjósanlegur vegna kostnaðar.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

