Forsíða

Frétt

01.03.2010 19:03 | Grétar Magnússon

Meiðsli eftir Blackburn leikinn

Leikurinn gegn Blackburn tók sinn toll af leikmönnum liðsins.  Fabio Aurelio fór meiddur af velli og í dag kom í ljós að Daniel Agger þarf að láta meðhöndla bólgið hné.  Auk þess er Maxi Rodriguez með takkaför á bringunni eftir glórulausa tilraun Pascal Chimbonda til að meiða Argentínumanninn.

Talsmaður félagsins sagði þetta um meiðsli Agger í dag:  ,,Daniel fór í skoðun í dag og í ljós komu miklar bólgur í beini í hnénu á honum.  Hnéð er ennþá mjög bólgið og hann mun verða áfram undir eftirliti lækna á Melwood í vikunni."

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan