L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
09.03.2010 06:03
|
Sf. Gutt
Rafa reiður!
Þar kom að Rafael Benítez fékk nóg. Hann hefur oft reynt að verja sína menn, og það þótt þeir hafi ekki átt það skilið, en í gærkvöldi var honum nóg boðið eftir lélegan leik og tap sinna manna í Wigan. Rafael var þungbúinn og harðorður eftir leikinn.
"Ég er mjög vonsvikinn og ég get ekki verið ánægður eftir að hafa tapað svona. Við gerðum ekki nokkur skapaðan hlut í fyrri hálfleik og sýndum ekki þann baráttuanda sem til þurfti. Það er erfitt að útskýra þetta."
"Í leikhléinu ræddum við um að við þyrftum að snúa blaðinu við og laga það sem væri ekki í lagi. Við fengum nokkur færi en við spiluðum ekki vel. Það eru allir mjög niðurdregnir. Stundum spilar liðið vel og stundum ekki en við hefðum getað gert miklu betur á þessum mikilvæga tímapunkti."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikskýrslu
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir