Forsíða

Frétt

01.03.2010 20:03 | Sf. Gutt

Liverpool nælir í ungliða

Stórliðin eru ætíð með net sín úti til að reyna að næla í efnilegustu leikmennina. Liverpool náði í einn núna á dögunum og vildu fleiri fá. Hann heitir Raheem Sterling og Liverpool fékk hann frá Queens Park Rangers. Raheem, sem er 15 ára, mun vera sókndjarfur miðjumaður. Hann hefur spilað með yngri landsliðum Englands.

Liverpool hefur nælt í nokkra ungliða á síðustu mánuðum og má nefna Hafnfirðinginn Kristján Gauta Emilsson í þeim efnum. Svo er að sjá hverjir ná að verða virkilega góðir þannig að hægt verði að nota þá í aðalliðinu á komandi árum.




Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan