| Ólafur Haukur Tómasson

Glen Johnson hefur unnið allt með Liverpool!

Bakvörðurinn Glen Johnson gefur stuðningsmönnum innsýn á hvernig knattspyrnustjóri Rafael Benítez er. Lýsing hans getur ekki annað en verið sönn því hún passar við flestar lýsingar sem leikmann hafa gefið á Rafa.

"Hjá Rafa snýst allt um fótbolta en það er ekki slæmt mál. Hann auðsjáanlega elskar leikinn og vill að allir bæti sig og geri vel. Sem leikmaður þá getur maður aldrei kvartað undan því. Eins og allir leikmenn eru ólíkir þá eru allir knattspyrnustjórar einnig ólíkir. Sérhver stjóri hefur sína eigin leið á því hvernig hlutir eru gerðir og hafa sinn eigin stíl, Rafa er engin undantekning á því."

Erfið hnémeiðsli hafa haldið Glen frá fótboltaiðkun síðan í lok desember en talið er að hann snúi aftur í næsta mánuði. Hann segist vera kominn með nóg af því að sitja í sófanum og horfa á sjónvarpið en hann er búinn að vinna alla titlana með Liverpool.

"Ég er kominn með ógeð af sjónvarpinu. Þegar þú ert fastur í sófanum þá horfiru á hvað sem er. Sem betur fer kom Championship Manager mér líka í gegnum þennan tíma og ég er búinn að vinna allt sem hægt er með Liverpool."

Nú er vonandi að á næstu árum muni hann vinna alla þessa titla í alvörunni og hver veit nema að hann muni stýra Liverpool til sigurs í þessum keppnum eftir að hann leggur skónna á hilluna. Glen hefur nú allavega fengið ágætan tíma til að æfa sig sem knattspyrnustjóri á meðan hann glímir við meiðslin.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan