| Sf. Gutt
Ungliðar Liverpool féllu í gærkvöldi úr Unglingabikarkeppninni eftir óvænt tap fyrir Watford. Liverpool komst í úrslit í fyrra, þar sem liðið tapaði fyrir Arsenal, þannig að þetta tap er nokkuð áfall fyrir unglingastarfið.
Búist var við að Liverpool færi áfram og þá ekki síst vegna þess að leikið var á Anfield. Liðið lék þó illa og mátti þola tap. Gestinir komust yfir á 18. mínútu þegar Piero Mingoia skoraði úr vítaspyrnu. Þótti dómurinn harður.
Kristján Gauti Emilsson, sem hér er á mynd, kom inn á sem varamaður í leikhléi. Hann var ekki fjarri því að jafna undir lokin en hann skallaði rétt framhjá. Lánið lék svo við Watford þegar komið var fram í viðbótartíma. Ungverjinn Krisztian Adorjan, sem kom inn á um leið og Kristján, skoraði þá af stuttu færi eftir góða sókn upp hægri kantinn og fyrirgjöf Tom Ince. Markið var dæmt af vegna rangstöðu og var það mál manna á Anfield að sá dómur hafi verið rangur. Sigur hefði skilað Liverpool í átta liða úrslit en liðið er þess í stað úr leik.
Liverpool: Chamberlain; Flanagan, Wisdom, Sama, Robinson; Ellison (Adorjan 45. mín.), Roberts, Coady, Ince; Dalla Valle og Ngoo (Emilsson 45. mín.). Ónotaðir varamenn: McGiveron, Jacob og Roddan.
TIL BAKA
Ungliðarnir úr leik
Ungliðar Liverpool féllu í gærkvöldi úr Unglingabikarkeppninni eftir óvænt tap fyrir Watford. Liverpool komst í úrslit í fyrra, þar sem liðið tapaði fyrir Arsenal, þannig að þetta tap er nokkuð áfall fyrir unglingastarfið. Búist var við að Liverpool færi áfram og þá ekki síst vegna þess að leikið var á Anfield. Liðið lék þó illa og mátti þola tap. Gestinir komust yfir á 18. mínútu þegar Piero Mingoia skoraði úr vítaspyrnu. Þótti dómurinn harður.
Kristján Gauti Emilsson, sem hér er á mynd, kom inn á sem varamaður í leikhléi. Hann var ekki fjarri því að jafna undir lokin en hann skallaði rétt framhjá. Lánið lék svo við Watford þegar komið var fram í viðbótartíma. Ungverjinn Krisztian Adorjan, sem kom inn á um leið og Kristján, skoraði þá af stuttu færi eftir góða sókn upp hægri kantinn og fyrirgjöf Tom Ince. Markið var dæmt af vegna rangstöðu og var það mál manna á Anfield að sá dómur hafi verið rangur. Sigur hefði skilað Liverpool í átta liða úrslit en liðið er þess í stað úr leik.
Liverpool: Chamberlain; Flanagan, Wisdom, Sama, Robinson; Ellison (Adorjan 45. mín.), Roberts, Coady, Ince; Dalla Valle og Ngoo (Emilsson 45. mín.). Ónotaðir varamenn: McGiveron, Jacob og Roddan.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

