| Grétar Magnússon
Alberto Aquilani mun ekki spila gegn Arsenal á morgun, miðvikudag, vegna veikinda. Ítalinn er smitaður af veiru sem veldur uppköstum.
Rafael Benítez staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag: ,,Alberto mun ekki vera í hópnum fyrir leikinn við Arsenal. Hann er með sömu veiru og Martin Skrtel var með í síðustu viku."
,,Þetta er ekki alvarlegt en Martin missti fjögur kíló vegna þessa."
Aðal höfuðverkur Benítez fyrir leikinn verður að stilla upp vörninni þar sem Sotirios Kyrgiakos er í banni eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Everton.
Skrtel kemur líklega inn í vörnina í staðinn fyrir Grikkjann þar sem Jamie Carragher spilar áfram í hægri bakvarðastöðunni.
Benítez sagði: ,,Við þurfum að vinna okkur út úr þessari stöðu. Við vorum ekki ánægðir með brottreksturinn en við fáum honum ekki breytt. Ég mun því velja á milli Carra, Agger og Skrtel.
TIL BAKA
Aquilani ekki með gegn Arsenal
Alberto Aquilani mun ekki spila gegn Arsenal á morgun, miðvikudag, vegna veikinda. Ítalinn er smitaður af veiru sem veldur uppköstum.Rafael Benítez staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag: ,,Alberto mun ekki vera í hópnum fyrir leikinn við Arsenal. Hann er með sömu veiru og Martin Skrtel var með í síðustu viku."
,,Þetta er ekki alvarlegt en Martin missti fjögur kíló vegna þessa."
Aðal höfuðverkur Benítez fyrir leikinn verður að stilla upp vörninni þar sem Sotirios Kyrgiakos er í banni eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Everton.
Skrtel kemur líklega inn í vörnina í staðinn fyrir Grikkjann þar sem Jamie Carragher spilar áfram í hægri bakvarðastöðunni.
Benítez sagði: ,,Við þurfum að vinna okkur út úr þessari stöðu. Við vorum ekki ánægðir með brottreksturinn en við fáum honum ekki breytt. Ég mun því velja á milli Carra, Agger og Skrtel.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

