L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
09.02.2010 22:02
|
Ólafur Haukur Tómasson
El Zhar ætlar að snúa sterkari frá meiðslum
Kantmaðurinn Nabil El Zhar sem þótti afar mikið efni á sínum tíma þegar hann kom til Liverpool árið 2006. Hann hefur því miður ekki náð þeim hæðum sem búist var við af honum enn sem komið er en hann er nú orðinn 23 ára gamall.
El Zhar fékk hins vegar reglulegt hlutverk í leikmannahóp Liverpool á síðustu leiktíð og átti marga fína spretti eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Hann hélt uppteknum hætti á undirbúningstímabilinu og var einn af fáu ljósu punktum liðsins á þeim tíma. Frammistöður hans í æfingaleikjunum þóttu góðar og var hann gjarnan talinn líklegur til að spila enn stærra hlutverk í liðinu á þessari leiktíð.
Hann varð fyrir því óhappi í einum æfingaleiknum að meiðast á hné og hefur misst af flest öllu leiktímabilinu til þessa, að undanskildum leik gegn Blackburn fyrir nokkrum vikum þegar hann var inn á af varamannabekknum. Hann er nú byrjaður að æfa á fullu með aðalliðinu og lék varaliðsleik fyrir skömmu. Það líður því líklega ekki að löngu þar til að hann kemst aftur í leikmannahóp liðsins.
Hann vonast til þess að koma sterkur eftir meiðslin og segist vilja að stuðningsmenn Liverpool hætti að líta á hann sem einn af yngri og efnilegri leikmönnum liðsins.
"Ég veit að sumir stuðningsmenn sjá nafnið mitt á liðsuppstillingunni og hugsa með sér 'Nabil El Zhar - hann er einn af ungu leikmönnunum.', það er ekki rétt. Það væri rétt ef ég væri átján eða nítján ára en ég er 23 ára og að komast á mikilvægt stig á ferlinum.
Ég hef tvær megin óskir fyrir hvert tímabil. Sú fyrri er að spila fleiri leiki en á undanliðinni leiktíð, sú seinni er að bæta mig sem leikmann og manneskju. Síðasta leiktíð var góð fyrir mig, ég spilaði ágætlega mikið af leikjum og ég fann fyrir mikilli bætingu í mínum leik. Það sem af er liðið árs hafa meiðsli orsakað það að ég hef ekki einu sinni getað byrjað að telja niður að því sem ég stefndi.
Leikurinn gegn Blackburn var erfiður en mér fannst gott að komast aftur í spil. Ég reyndi mitt besta við að gefa liðinu aukna breitt og hraða, á endan var ég sáttur með frammistöðu mína. Ég hlakkaði til að spila stærra hlutverk með liðinu en þá varð ég fyrir bakslagi. Þetta hefur verið einn af mest óspennandi tímum ferilsins míns.
Ég á enn mikið eftir ógert og það er enn tími fyrir mig til að vinna mér inn fast sæti í byrjunarliðinu en ég verð að eiga góðan tíma án meiðsla til að geta gert það." sagði El Zhar.
El Zhar tók þátt í 19 leikjum á síðustu leiktíð en í heildina hefur hann spilað 26 og skorað eitt mark, markið kom með glæsilegu skoti í bikarleik gegn Cardiff leiktíðina 2007/2008. Hann þykir gefa góða breidd á leik Liverpool og hefur hentað vel í leikjum þar sem þarf að teigja á og brjóta upp varnir andstæðinganna.
Rafael Benítez hefur mikið álit á El Zhar, það mikið að hann bauð honum nýjan samning sem gildir til ársins 2013 en hann skrifaði undir þriggja ára framlengingu samning síns síðastliðið sumar.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld