Forsíða

Frétt

08.02.2010 05:02 | Sf. Gutt

Liverpool selur markmann

Liverpool náði að selja markmann áður en lokað var fyrir félagskipti. Drjúg upphæð fékkst fyrir mann sem aldrei lék með liðinu.

Um er að ræða Búlgarann Nikolay Mihaylov. Liverpool seldi hann til hollenska liðsins Twente og fékk eina og hálfa milljón sterlinspunda í sinn hlut. Það verður að teljast gott verð fyrir mann sem aldrei spilaði einn einasta leik. Nikolay kom til Liverpool árið 2007 frá Levski Sofia. Hann hefur verið í láni hjá Twente lengst af frá því hann gekk til liðs við Liverpool. Hann hefur spilað með landsliði Búlgara.  

Liverpool seldi þrjá menn í janúar. Fyrir utan Nikolay þá voru þeir Andriy Voronin og Andrea Dossena líka seldir.

Nikolay kom lítið við sögu hjá Liverpool en hann komst í fréttir á liðinu sumri fyrir undarlegar sakir





 


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan