Forsíða

Frétt

01.02.2010 22:02 | Sf. Gutt

Enn vinnur varaliðið!

Varalið Liverpool stefnir á fjóra titla á leiktíðinni og í kvöld komst liðið áfram í Lancashire bikarnum. Liðið gæti unnið, fyrir utan þessa keppni, varaliðsdeildina, Englandsmeistaratitil varaliða og Bikarkeppni Liverpool. Kannski ekki neinir stórtitlar en velgengni er alltaf af hinu góða. 

Í kvöld mætti Liverpool Bolton Wanderes í, Lancashire Senior Cup, á útivelli. Liverpool komst yfir á 41. mínútu þegar Daniel Pacheco lagði upp mark fyrir David Amoo. David slapp inn á vítateig þar sem hann lék á markamann Bolton og kom boltanum í markið. Bæði lið höfðu áður fengið góð færi.

Í leikhléi skiptu þeir leikmenn, sem sneru aftur í lið Liverpool eftir meiðsli, um stöður . Nabil El Zhar kom þá inn á sem varamaður fyrir Martin Kelly. Peter Gulacsi bjargaði vel í upphafi síðari hálfleiks frá Javlon Campbell. Daniel var alltaf ógnvaldur við vörn heimamanna og hann var nærri því að skora með því að skjóta yfir markmann Bolton frá miðju á 50. mínútu. Því miður þá fór boltinn rétt yfir markið. Liverpool náði nú yfirhöndinni og hefði átt að gera út um leikinn. Það tókst ekki og heimamenn reyndu að jafna undir lokin. Það tókst ekki og á 84. mínútu sendi David Amoo fyrir markið á Frakkann Damiel Plessis sem skoraði. Liverpool komst áfram og það er sannarlega gott útlit á varaliðinu á þessari leiktíð eftir slakt gengi á þeirri síðustu. 

Liverpool: Gulacsi, Kelly (El Zhar 46. mín.), Mavinga (Threlfall 87. mín.), Ayala, Darby, Spearing, Plessis, Irwin, Kacaniklic (Brouwer 74. mín.), Pacheco og Amoo. Ónotaðir varamenn: Oldfield og Mendy.
 
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Daniel Pacheco. Spánverjinn átti enn einn stórleikinn. 

Daniel hlýtur að fara að fá tækifæri með aðalliðinu áður en langt um líður því hann er búinn að vera frábær með varaliðinu á leiktíðinni. Margir vonuðust til að hann kæmi eitthvað við sögu gegn Bolton um helgina en það varð ekki.
 
Guðlaugur Viktor Pálsson var meðal leikmanna Liverpool að þessu sinni.




Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan