L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
01.02.2010 22:02
|
Sf. Gutt
Af vistaskiptum
Ekki er vitað til þess að neinn leikmaður hafi komið til Liverpool á þessum síðasta degi þessa félagaskiptatímabils. Einn fór þó frá félaginu og nokkrir breyttu lánssamningum sínum.
Einn leikmaður hefur yfirgefið Liverpool fyrir fullt og fast. Þjóðverjinn Christopher Buchtmann, sem er hér á mynd, gekk í dag til liðs við Fulham. Hann kom til Liverpool frá Borussia Dortmund árið 2008. Hann var í Evrópumeistaraliði Þjóðverja í keppni liða undir 17 ára á síðasta vori. Brottför hans kemur nokkuð á óvart því Christopher var talinn með
bestu leikmönnum
í Evrópu í sínum aldursflokki.
Nathan Eccleston fór sem lánsmaður til Huddersfield Town í síðustu viku. Hann átti að vera þar út þennan mánuð en nú hefur verið ákveðið að hann verði í láni út leiktíðina. Nathan byrjaði eins og best gat verið í láninu því hann skoraði eina mark leiksins þegar Huddersfield vann sigur á Yeovil Town um helgina.
Tveir af yngri markmönnum Liverpool framlengdu lánssamninga sína. Ástralinn Dean Bouzanis lengdi samning sinn við Accrington Stanley og verður hjá liðinu út maí. David Martin verður lengur hjá Leeds en ætlað og kemur ekki him fyrr en 10. þessa mánaðar. Hann hefur verið til vara hjá Leeds meðal annar þegar liðið vann frækilegan sigur á Manchester United í byrjun árs. Hann hefur væntanlega skemmt sér þar!
Hollenski strákurinn Vincent Weijl var lánaður til hollenska liðsins Helmond Sport og verður þar út leiktíðina.
Liverpool hefur bara keypt Maxi Rodriguez og nú er að vona að hann standi sig.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld