L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
31.01.2010 20:01
|
Grétar Magnússon
Rafa neitar sögusögnum
Fréttir um helgina hafa margar hverjar verið þess efnis að Rafael Benítez sé búinn að gera samkomulag við Juventus um að taka við liðinu næsta sumar.
Á opinberri heimasíðu félagsins birtist tilkynning frá Benítez þar sem hann áréttar að hann hafi ekki hitt forráðamenn ítalska liðsins. Tilkynningin fer hér á eftir.
,,Fréttir frá Ítalíu um helgina hafa sagt að ég sé búinn að vera í viðræðum við Juventus. Ég vil taka það skýrt fram að ég hef ekki komist að neinu samkomulagi við félagið og hef ekki og mun ekki hitta forráðamenn þess eða annars félags."
,,Ég er með langtímasamning við Liverpool og ég endurtek það sem ég sagði á föstudaginn um að ég er ánægður hér og einbeiti mér bara að því að vinna starf mitt eins vel og ég get til að koma liðinu aftur í eitt af fjórum efstu sætunum. Næsta skref í því takmarki er nágrannaslagurinn við Everton um næstu helgi."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld