L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
30.01.2010 21:01
|
Sf. Gutt
Draumabyrjun hjá Kristjáni Gauta!
Ferill Kristjáns Gauta Emilssonar hjá Liverpool hefði ekki getað byrjað betur. Hann lék sinn fyrsta leik í dag og skoraði sigurmark gegn Manchester United!
Kristján kom inn á sem varamaður í undir 18 ára liði Liverpool sem mætti Manchester United á útivelli í unglingadeildinni. Kristján Gauti kom til leiks á 60. mínútu. Ekkert mark hefði þá verið skorað í leiknum en það breyttist þegar fimm mínútur voru eftir. Tom Ince sendi þá góða sendingu fyrir frá hægri beint á höfuðið á Kristjáni sem skallaði í mark úr teignum. Skallinn var vel framkvæmdur hjá Kristjáni og boltinn steinlá í markinu. Markið tryggði sigur Liverpool og það er varla hægt að byrja feril sinn betur sem leikmaður Liverpool en með að skora sigurmark gegn Manchester United nema þá gegn Everton!
Liverpool:
Oldfield, Flanagan, Wisdom, Sama, Robinson, Roberts, Coady, Ince, Ngoo, Adorjan ( Emilsson 60. mín.) og Dalla Valle. Ónotaðir varamenn: Chamberlain, Ellison, Roddan og Ihiekwe.
Kristján Gauti Emilsson gekk til liðs við Liverpool frá F.H. í síðasta mánuði en þetta var fyrsti leikur hans með Liverpool. Undir 18 ára liði Liverpool hefur gengið misjafnlega á þessu keppnistímabili en liðið er enn með í Unglingabikarkeppninni og ekki er ólíklegt að Kristján fái tækifæri í þeirri keppni.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld