L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
27.01.2010 21:01
|
Sf. Gutt
Öruggur stórsigur!
Liverpool komst áfram í undanúrslit Bikarkeppni Livrepool borgar í kvöld eftir öruggan stórsigur 4:0 gegn utandeildarliðinu Ashton Town. Vörn þessa titils heldur því áfram en Liverpool vann hann á síðasta keppnistímabili.
Liverpool hóf leikinn af krafti og komst yfir á 14. mínútu. David Amoo fékk boltann í teignum og skaut að marki. Málinu var bjargað í bili en Svíinn Alex Kacaniklic, sem er hér á mynd, tók frákastið og sendi boltann í markið. Eftir þetta var aðeins spurning um hversu stór ósigur heimamanna yrði en þeir börðust þó vel. David Amoo var næstum búinn að skora litlu síðar eftir undirbúning Alex og mörkin hefðu getað orðið fleiri í fyrri hálfleik.
Yfirburðir Liverpool héldu áfram í síðari hálfleik og Hollendingurinn Jordy Brouwer, sem kom til leiks í hálfleik, skoraði strax í byrjun. Á 58. mínútu fékk Liverpool aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Jay Spearing tók aukaspyrnuna og smellti boltanum neðst í markhornið. Emmanuel Mendy innsiglaði svo stórsigur Liverpool þegar sjömínútur voru eftir af leiknum.
Guðlaugur Victor Pálsson var varamaður líkt og í síðasta leik en nú fékk hann að koma inn á. Athygli vakti að Damien Plessis, sem orðaður var við brottför til Ítalíu núna í vikunni, lék allan leikinn. Kannski var verið að fylgjast með honum.
Liverpool:
Oldfield, Irwin, Mavinga, Threlfall, Ayala, Spearing (Kohlert 60. mín.), Plessis, Kacaniklic, Mendy, Amoo (Pálsson 68. mín.) og Saric (Brouwer 46. mín.).
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv:
Alex Kacaniklic
Liverpool tefldi fram varaliði sínu eins og venja er til í þessari keppni. Þetta var annar leikur liðsins á árinu en
sá fyrsti
var í síðustu viku.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir