| Sf. Gutt

Ian Rush hefur orðið

Enn og aftur gerir Ian Rush baráttuna um Meistaradeildarsæti að umtalsefni. Honum hefur vaxið bjartsýni í því efni eftir góð úrslit í síðustu deildarleikjum. Barátta, staðfesta og slíkir þættir eru lykill að því að Liverpool komist í gang. Það sama gildir ef vel á fara í vor. 

Ian telur að brottför Sami Hyypia til Þýskalands hafi skilið eftir sig stórt skarð. Honum finnst þó að fram sé kominn maður sem geti fyllt skarðið sem Finninn magnaði skildi eftir. Hver skyldi sá maður vera? Það líður að lokum félaskiptatímabilsins. Einn nýr leikmaður hefur komið til Liverpool en Ian vill fá einn í viðbót. En í hvað stöðu? Ian er tilbúinn með pistil vikunnar.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan