Forsíða

Frétt

27.01.2010 18:01 | Sf. Gutt

Yossi er ekki til sölu!

Sögusagnir hafa verið á flugi í dag um að Yossi Benayoun væri á leið frá Liverpool til Rússlands. Haft var eftir einum af forráðamönnum Dynamo í Moskvu að Yossi myndi ganga til liðs við félagið. Þetta mun ekki eiga við nein rök að styðjast og eftirfarandi tilkynning birtist á vefsíðu Liverpool F.C. í dag.

"Leikmaðurinn er ekki til sölu. Svo einfalt er það nú."
 
Líklega mun þessi tilkynning gleðja stuðningsmenn Liverpool því Yossi er búinn að vera einn öflugasti sóknarmaður liðsins á þessari leiktíð og ekki má nú við því að veikja sóknarleikinn. Sem stendur er Yossi að jafna sig eftir að hafa rifbeinsbrotnað gegn Reading á dögunum.
 





























Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin