Hápunktur ársins 2009 - Númer 1
Á dögunum könnuðum við hvaða atburður nýliðins árs lesendum Liverpool.is þótti merkilegastur. Við förum nú yfir niðurstöðurnar. Þetta var talinn markverðasti atburðurinn á því Herrans ári 2009.
Sigurinn á Manchester United á Old Trafford - 48%

14. mars 2009. Liverpool hafði fatast flugið eftir að hafa verið í efsta sæti deildarinnar um áramótin. Flestir töldu að tap á Old Trafford þýddi að Liverpool ætti enga möguleika á enska meistaratitlinum. Liverpool var því uppi við vegg en leikmenn liðsins sýndu hvað í þá var spunnið með því að hýða Manchester United 4:1. Sigurinn kom Liverpool aftur inn í baráttuna um Englandsmeistaratitilinn sem stóð svo fram á vor.




Hér eru niðurstöður könnunarinnar í heild sinni.
Sigurinn á Manchester United á Old Trafford 48%
Sigurinn á Manchester United á Anfield 14%
Liverpool í efsta sæti deildarinnar í byrjun árs 11%
Steven Gerrard kosinn Knattspyrnumaður ársins 11%
Kaupin á Íslendingunum 8%
Sigurinn á Real Madrid á Anfield 8%
Greidd atkvæði: 1517.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

