Forsíða

Frétt

25.01.2010 20:01 | Ólafur Haukur Tómasson

Gerrard gæti spilað gegn Wolves

Steven Gerrard meiddist í tapleiknum gegn Reading fyrr í mánuðinum en í leiknum meiddist hann ásamt Fernando Torres og Yossi Benayoun.

Torres þurfti í aðgerð, Gerrard hefði átt að vera frá í tvær til þrjár vikur og Yossi frá í rúmlega mánuð. Bati Gerrard var skjótari en ráð var gert fyrir og er hann nú í myndinni fyrir leikinn gegn Wolves á morgun.

"Hann æfði á laugardaginn, tók þátt í fullri æfingu á sunnudaginn og í dag var það sama upp á teningnum. Yfirleitt er hann maður sem getur spilað ef hann er tilbúinn til þess. Við ákveðum þetta seinna en ég held að hann verði klár. Við ákveðum það á morgun." sagði Rafael Benítez.

Ásamt Gerrard þá eru þeir Nabil El Zhar og Martin Kelly byrjaðir að æfa aftur. El Zhar meiddist í æfingaleik í sumar og hefur ekki getað spilað með liðinu á leiktíðinni og Kelly fór meiddur út af gegn Lyon í Meistaradeildinni í síðastliðnum Október.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin