| HI

Kenny Dalglish sá besti frá seinni heimsstyrjöld

Kenny Dalglish hefur verið útnefndur besti framherjinn í enska boltanum frá lokum seinni heimsstyrjaldar af tímaritinu Four Four Two. Tímaritið birti lista yfir 50 bestu famherjana á þessu tímabili og eru alls níu sóknarmenn Liverpool í hópnum.

Eric Cantona varð í öðru sæti á listanum, Thierry Henry í því þriðja og Jimmy Greaves í því fjórða.

Af öðrum leikmönnum Liverpool var Ian Rush í 7. sæti, Kevin Keegan í 20. sæti, Roger Hunt númer 24 og Fernando Torres varð í 29. sæti, rétt á undan John Toshack (31), Michael Owen (33) og Billy Liddell (36). Robbie Fowler hafnaði í 41. sæti og John Aldridge varð númer 48.

Listinn var unninn þannig að sóknarmennirnir fengu einkunn frá einum og upp í tíu í fjórum flokkum:
a) markaskorun, hversu iðnir þeir voru við kolann á hátindi ferilsins og hversu lengi þessi hátindur varði
b) hversu vel þeir léku í stórleikjum
c) þáttur þeirra í titlum og verðlaunum sem lið þeirra unnu, með tilliti til þess að nokkur lið hafa meiri möguleika á að vinna til þeirra
d) framlag þeirra til liðsins

Að auki fengu allir einkunn frá einum og upp í 20 fyrir það sem kallað er á ensku "wow-factor" og vísar til þess hvernig þeir skáru sig úr og skemmtu og glöddu stuðningsmenn liða sinna. Kenny Dalglish fékk úr þessari stigagjöf 51 stig.

Listinn í heild lítur svona út:

1. Kenny Dalglish
2. Eric Cantona
3. Thierry Henry
4. Jimmy Greaves
5. John Charles
6. Stan Mortensen
7. Ian Rush
8. Wayne Rooney
9. Denis Law
10. Henrik Larsson
11. Dennis Bergkamp
12. Nat Lofthouse
13. Didier Drogba
14. Jackie Milburn
15. Geoff Hurst
16. Gary Lineker
17. Alan Shearer
18. Tommy Lawton
19. Mark Hughes
20. Kevin Keegan
21. Lawrie Reilly
22. Tommy Taylor
23. Gianfranco Zola
24. Roger Hunt
25. Bobby Smith
26. Steve Chalmers
27. Ruud van Nistelrooy
28. Wilf Mannion
29. Fernando Torres
30. Teddy Sheringham
31. John Toshack
32. Trevor Francis
33. Michael Owen
34. Francis Lee
35. Brian Clough
36. Billy Liddell
37. Dwight Yorke
38. Ian Wright
39. Ally McCoist
40. Don Revie
41. Robbie Fowler
42. Joe Jordan
43. Ray Crawford
44. Andy Gray
45. Allan Clarke
46. Jack Rowley
47. Andy Cole
48. John Aldridge
49. Trevor Ford
50. Duggie Reid
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan