L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
24.01.2010 19:01
|
Heimir Eyvindarson
Ég er Scouser
Eftir þrjú og hálft ár á Anfield segist Dirk Kuyt vera meiri ,,Scouser" en Hollendingur, en íbúar Liverpool borgar eru sem kunnugt er oft kallaðir Scousers, og er þá einkum vísað til hinnar undarlegu mállýsku (scouse accent) sem íbúar borgarinnar og nágrennis tala.
Í samtali við Daily Mirror segir Kuyt að honum líki lífið í Liverpool afskaplega vel og honum og fjölskyldu hans hafi gengið vel að aðlagast lífinu í Bítlaborginni. ,,Börnin mín tala meira að segja orðið ensku með scouser hreim!"
,,Þessi mállýska hér í Liverpool hentar okkur Hollendingum reyndar frekar vel því það eru allskonar (ó)hljóð sem eru lík með scouserhreimnum og hollenskunni. Elsta dóttir mín, Noelle, hefur t.d. náð svo góðum scouserhreim að þegar við förum í ferðalög þar sem við þurfum að bregða fyrir okkur enskunni þá á fólk í erfiðleikum að skilja hana!"
,,Við reyndum að halda í hollenskuna þegar við komum hingað og hafa það sem aðalmálið heima hjá okkur, en það gekk ekki. Það er scouserhreimur í kringum mig allan daginn, og mér finnst það bara skemmtilegt."
,,Yngri börnin okkar tvö, Roan og Jordan, eru ekta Scouserar og þau heita líka enskum nöfnum af því að þau fæddust hér. Ég verð að viðurkenna að ég er sjálfur orðinn hálfgerður Scouser. Okkur finnst við jafnvel orðið eiga enn frekar heima hér en í Hollandi. Við förum sjaldan til Hollands nú orðið."
En þótt Dirk Kuyt líki lífið í Liverpool vel og hann sé kominn vel inn í hið daglega líf í Bítlaborginni þá segist hann ennþá vera hollenskur að einu leyti. ,,Ég er ennþá ekta Hollendingur þegar kemur að mat. Willem vinur minn kemur með uppáhaldsmatvörurnar mínar frá Hollandi í hverri viku. Ég get ekki án þess verið."
,,En ég borða auðvitað enskan mat líka, sérstaklega fisk og franskar. Ég kaupi fish&chips fyrir fjölskylduna í hverri viku held ég."
,,Mér gæti ekki liðið betur en mér líður í Liverpool. Félagið er einstakt og stuðningsmennirnir eru alveg ótrúlegir. Tímabilið hjá okkur hefur verið erfitt en aðdáendurnir snúa aldrei við okkur bakinu."
,,Ég hef verið hjá öðrum félögum þegar illa hefur gengið og þá hefur gagnrýnin verið mjög hörð og óvægin. Hér vilja aðdáendurnir að maður beri höfuðið hátt og haldi áfram að berjast. Þeir óska manni góðs gengis jafnvel þótt þeir viti að maður hafi spilað hörmulega illa. Það er ótrúlegt að fá slíkar kveðjur frá fólki sem hefur svo sannarlega þurft að líða fyrir hversu illa okkur hefur gengið í vetur, en það sýnir hve vænt þeim þykir um liðið sitt. Þetta er algerlega einstakt félag."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld