| Ólafur Haukur Tómasson

Liverpool í samstarf við Genk

Liverpool Football Club og KRC Genk í Belgíu hafa gert samkomulag sín á milli um samstarf milli félaganna tveggja. Forráðamenn félagana hafa fundað nokkru sinnum á undanförnum vikum og nú hefur verið samið um samstarf félaganna tveggja sem gildir til ársins 2014, í það minnsta.

Bæði lið munu geta notið góðs af samstarfinu og má flokka samstarfið niður í þrjá hluta. Í fyrsta lagi þá deila Liverpool og Genk upplýsingum frá útsendurum sínum. Í öðru lagi þá fær Genk tækifæri á að fá lánsmenn frá Liverpool sem bæði styrkir lið þeirra og gefur leikmönnum Liverpool spilatíma sem þeir þurfa en fá ekki hjá Liverpool. Í þriðja og síðasta lagi fær Liverpool gullið tækifæri til að semja við leikmenn frá Afríku og Suður-Ameríku.
Í Belgíu eru ekki eins ströng lög og í Englandi varðandi vegabréf utan Evrópu og því getur Genk boðið Liverpool upp á það að hýsa og þróa leikmennina þar til þeir fá Evrópskan ríkisborgararétt eða ná upp 75% landsleikja lands síns. Þegar annað hvort hefur tekist þá flytjast þeir til Liverpool með alla löglega pappíra.

Liverpool hefur gengið illa að fá inn leikmenn frá Suður-Ameríku og meðal annars eru þeir Sebastian Leto og Mark Gonzalez sem báðir áttu í miklum erfiðleikum með að fá heimild til að flytja til Englands. Það tókst hjá Gonzalez sem því miður eftir allt erfiðið í kringum hann var einfaldlega ekki nógu góður fyrir Liverpool en heimild Leto var ekki samþykkt og því var hann lánaður til Grikklands og síðan seldur til Panathiakos í sumar. Einnig var Búlgaranum Nikolay Mihaylov neitað um leikheimild og var hann sendur á láni til Hollands.

Framkvæmdarstjóri Genk, Dirk Degraen kom til Melwood í síðustu viku þar sem hann hitti Rafael Benítez og yfirútsendarann Eduardo Macia.

"Liverpool vill semja við efnilega leikmenn frá Afríku og Suður-Ameríku en vegna bresku laganna þá er það ekki mögulegt. Við getum fengið leikmennina til Belgíu og leyft þeim að þróast. Það yrði sigur fyrir bæði félögin. Liðið hjá Liverpool er einnig mjög stórt og margir leikmenn fá ekki mikinn spilatíma, Genk getur boðið lausn við því ef okkur verður boðið leikmenn sem styrkja lið okkar." sagði Degraen.

Genk, líkt og Liverpool, hefur átt tímabil sem hefur ollið vonbrigðum eins og staðan er í dag en liðið situr í tíunda sæti deildarinnar en er oftast í baráttu um Evrópusæti við Anderlecht, Standard Liege og Club Brugge. Stjóri Genk, Franky Vercauteren er talinn vilja fá sóknarmann á láni frá Liverpool en eftir söluna á Andriy Voronin í mánuðinum og með Fernando Torres meiddan þá er ekki víst að Rafael Benítez sé tilbúinn að lána einhvern af þeim sóknarmönnum sínum sem eftir eru.

Samstarf félagana er ekki ósvipað því sem að Manchester United hafa átt við belgíska liðið Royal Antwerp en hjá því liði hafa nokkrir leikmenn liðsins hlotið dýrmæta reynslu í Belgíu, þar á meðal John O'Shea, Jonny Evans og Fraizer Campbell. Því gæti sú reynsla sem ungir leikmenn Liverpool myndu hljóta á láni hjá Genk reynst þeim dýrmæt í baráttu þeirra um að vinna sér inn sæti í aðalliðinu.

Liverpool á í samstarfi við nokkur félög út í heimi til dæmis MTK, þar sem Liverpool hefur nælt í nokkra mjög efnilega leikmenn, og Ashanti Gold, félag í Ghana þar sem Liverpool á að eiga forkaupsrétt á efnilegu leikmönnum liðsins - það samstarf hefur nú ekki skilað sínu eins og staðan er í dag því að eins og áður kom fram mega leikmenn frá Afríku ekki flytjast til Englands nema hafa Evrópsk vegabréf en það gæti breyst með samstarfinu við Genk.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan