| Sf. Gutt
Steve Morgan er núverandi eigandi Wolverhampton Wanderes en hann var áður stjórnarmaður hjá Liverpool Football Club í nokkur ár. Hann segir að félagið myndi nú vera í góðum höndum ef hann hefði fengið að ráða. Árið 2004 gerði hann stjórn Liverpool kauptilboð. David Moores, sem þá var aðaleigandi Liverpool, hafnaði tilboðinu vegna þess að hann taldi það ekki nógu gott.
Árið 2007 var Liverpool F.C. svo selt í hendur þeirra George Gillett og Tom Hicks. Steve fullyrðir að félagið væri nú skuldlaust og miklu betur statt fjárhagslega hefði tilboði hans verið tekið á sínum tíma.
"Ég ætla ekki að fara í neitt orðaskak við David Moores en staðreyndin er sú að David Moores hugsaði fyrst og síðast um hvað kæmi honum sjálfum best en ekki félaginu. Hann hafði fullan rétt á því en sú ákvörðun sem hann tók hefur sett Liverpool í þá stöðu sem félagið er núna í. Mér finnst leiðinlegt að segja það núna en ég taldi mig sjá hvað verða vildi og spá mín gekk eftir. Það er alveg hægt að fletta upp á því sem sagði á sínum tíma og sannreyna það."
Þótt Steve Morgan sé nú eigandi Wolves þá ber hann hag Liverpool enn fyrir brjósti og hann hefur áhyggjur af gamla félaginu sínu.
"Ég óttast að fjárhagsstaða Liverpool eigi eftir að versna ennþá meira ef liðið kemst ekki í Meistaradeildina. Þá munu líka bestu menn liðsins eins og Fernando Torres vilja fara. Steven Gerrard, sem er búinn að fórna sér algjörlega fyrir félagið síðustu 10 árin, mun líka íhuga framtíð sína."
Liverpool og Wolverhampton Wanderes eru búin að spila báða deildarleiki sína á þessu keppnistímabili. Liverpool vann 2:0 á Anfield um jólin en liðin skildu jöfn án marka í Wolverhampton. Þetta voru merkilegir leikir fyrir Steve Morgan sem enn hefur sterkar taugar til Liverpool.
"Það var tilfinningarþrungin dagur þegar við spiluðum á Anfield og þá sérstaklega vegna þess að sonur minn var boltastrákur. Ég er fullkomlega tryggur Wolves núna en ég vona þó að þeim gangi vel nema auðvitað þegar þeir mæta Wolves."
Þetta sem Steve Morgan segir um stöðu mála hjá Liverpool og gamla tilboðið sitt er athyglisvert en líklega verður seint fundið út hvort hann hefði getað sett nægt fjármagn inn í rekstur Liverpool football Club. Það er þó hugsanlegt að vel hefði tekist til undir hans stjórn.
Steve keypti Wolves fyrir nokkrum árum og undir hans leiðsögn komst liðið upp í Úrvalsdeildina síðasta vor. Nú er að sjá hvort liðið heldur sæti sínu í deildinni í vor.
TIL BAKA
Liverpool væri í góðum höndum!
Steve Morgan er núverandi eigandi Wolverhampton Wanderes en hann var áður stjórnarmaður hjá Liverpool Football Club í nokkur ár. Hann segir að félagið myndi nú vera í góðum höndum ef hann hefði fengið að ráða. Árið 2004 gerði hann stjórn Liverpool kauptilboð. David Moores, sem þá var aðaleigandi Liverpool, hafnaði tilboðinu vegna þess að hann taldi það ekki nógu gott. Árið 2007 var Liverpool F.C. svo selt í hendur þeirra George Gillett og Tom Hicks. Steve fullyrðir að félagið væri nú skuldlaust og miklu betur statt fjárhagslega hefði tilboði hans verið tekið á sínum tíma.
"Ég ætla ekki að fara í neitt orðaskak við David Moores en staðreyndin er sú að David Moores hugsaði fyrst og síðast um hvað kæmi honum sjálfum best en ekki félaginu. Hann hafði fullan rétt á því en sú ákvörðun sem hann tók hefur sett Liverpool í þá stöðu sem félagið er núna í. Mér finnst leiðinlegt að segja það núna en ég taldi mig sjá hvað verða vildi og spá mín gekk eftir. Það er alveg hægt að fletta upp á því sem sagði á sínum tíma og sannreyna það."
Þótt Steve Morgan sé nú eigandi Wolves þá ber hann hag Liverpool enn fyrir brjósti og hann hefur áhyggjur af gamla félaginu sínu.
"Ég óttast að fjárhagsstaða Liverpool eigi eftir að versna ennþá meira ef liðið kemst ekki í Meistaradeildina. Þá munu líka bestu menn liðsins eins og Fernando Torres vilja fara. Steven Gerrard, sem er búinn að fórna sér algjörlega fyrir félagið síðustu 10 árin, mun líka íhuga framtíð sína."
Liverpool og Wolverhampton Wanderes eru búin að spila báða deildarleiki sína á þessu keppnistímabili. Liverpool vann 2:0 á Anfield um jólin en liðin skildu jöfn án marka í Wolverhampton. Þetta voru merkilegir leikir fyrir Steve Morgan sem enn hefur sterkar taugar til Liverpool."Það var tilfinningarþrungin dagur þegar við spiluðum á Anfield og þá sérstaklega vegna þess að sonur minn var boltastrákur. Ég er fullkomlega tryggur Wolves núna en ég vona þó að þeim gangi vel nema auðvitað þegar þeir mæta Wolves."
Þetta sem Steve Morgan segir um stöðu mála hjá Liverpool og gamla tilboðið sitt er athyglisvert en líklega verður seint fundið út hvort hann hefði getað sett nægt fjármagn inn í rekstur Liverpool football Club. Það er þó hugsanlegt að vel hefði tekist til undir hans stjórn.
Steve keypti Wolves fyrir nokkrum árum og undir hans leiðsögn komst liðið upp í Úrvalsdeildina síðasta vor. Nú er að sjá hvort liðið heldur sæti sínu í deildinni í vor.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

