| Grétar Magnússon

Maxi skrifar undir

Argentínumaðurinn Maxi Rodriguez skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við félagið í dag.  Hann kemur á frjálsri sölu frá Atletico Madrid.  Rodriguez fær treyju númer 17.

Maxi eru fyrstu kaup félagsins í þessum janúarglugga en fram til þessa höfðu tveir leikmenn verið seldir frá félaginu, þeir Andriy Voronin og Andrea Dossena.

Maxi er hæfileikaríkur og marksækinn kantmaður og getur hann leikið á báðum köntum eða sem afturliggjandi sóknarmaður.  Hann hóf feril sinn hjá Newell´s Old Boys í Argentínu og var hjá félaginu í þrjú tímabil eftir að hafa komið upp úr unglingastarfi félagsins.   Árið 2001 fór hann svo til spænska liðsins Real Oviedo á 6 mánaða lánssamningi, hann spilaði aðeins einn leik þar en var svo keyptur til Espanyol eftir að hafa slegið í gegn með argentínska landsliðinu á heimsmeistaramóti U-20 ára landsliða.

Hann lék með liðinu í þrjú ár og spilaði alls 110 leiki og skoraði í þeim 26 mörk.  Árið 2003 spilaði hann svo sinn fyrsta landsleik gegn Japan.  Árið 2005 var hann svo keyptur af Atletico Madrid, sumarið á eftir, árið 2006 lék hann svo stórt hlutverk með argentínska landsliðinu á HM í Þýskalandi.

Hann skoraði tvö mörk í 6-0 sigri á Serbíu og Svartfjallalandi og gegn Mexikó í 16-liða úrslitum skoraði hann sigurmark leiksins í framlengingu.  Argentínumenn féllu svo úr leik gegn Þjóðverjum í næstu umferð en í kosningu á vef FIFA var mark hans gegn Mexíkó valið mark mótsins.

Búist var við miklu af honum hjá Atletico eftir heimsmeistaramótið en hann meiddist í leik með landsliðinu gegn Spáni í október 2006 sem þýddi að hann spilaði aðeins 10 leiki það tímabilið.  Næsta tímabil kom hann sterkur til leiks og hjálpaði Atletico að ná fjórða sætinu í deildinni og þar með þátttöku í Meistaradeildinni í fyrsta skipti í sjö ár.  Atletico lentu svo í sama riðli og Liverpool og skoraði Maxi mark Atletico á Anfield í 1-1 jafntefli.  Þeir komust ásamt Liverpool upp úr riðlinum en féllu svo úr leik í 16-liða úrslitum, aftur lenti liðið svo í fjórða sæti í deildinni.

Liðin mættust svo á undirbúningstímabilinu í lok sumars á Anfield og skoraði Maxi aftur gegn Liverpool, nú í 2-1 sigri.  Hann hefur svo ekki fengið mörg tækifæri með Atletico það sem af er tímabilinu og var því ljóst að hann myndi leita á önnur mið.

Rafa Benítez hafði m.a. þetta að segja um nýjustu kaup félagsins:  ,,Hann er góður á boltanum, getur sent boltann og haldið honum vel.  Hann er góður í því að koma sér inní vítateiginn og skora mörk og hann er góður í að klára færi.  Á hverju ári skorar hann 5-15 mörk af hægri kantinum."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan