L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
13.01.2010 12:01
|
Birgir Jónsson
Maxi mættur til Liverpool!
Argentínski vængmaðurinn Maxi Rodriguez sem hefur verið orðaður við Liverpool að undanförnu hefur nú sést í Liverpool borg. Talið er að hann sé þangað kominn til að ganga frá félagaskiptum sínum á Anfield. Þessi 29 ára leikmaður Atletico Madrid mun gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir 18 mánaða samning og mun leikmaðurinn kosta 1.5 milljónir punda. Hann mun síðan fylgjast með nýjum liðsfélögum sínum í kvöld í endurteknum FA-bikarleik gegn Reading á Anfield áður en hann fer aftur til Spánar til að ganga frá lokaatriðum varðandi brottför sína.
Maxi Rodriguez, sem er góður vinur landa síns Javier Mascherano, á enn eftir að komast að samkomulagi um síðustu greiðslur frá Atletico. Vonast er þó til þess að hann verði mættur aftur til Englands fyrir ferðalagið til Stoke á laugardag.
Rafa Benítez hafði vonast til þess að kaupin gætu gengið í gegn í síðustu viku en þessi fyrrum leikmaður Newell´s Old Boys og Espanyol náði ekki að komast að samkomulagi varðandi brottför sína í tæka tíð.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir