| Grétar Magnússon
Brasilíumaðurinn Lucas varð 23 ára þann 9. janúar og telur Rafa Benítez hann hafa sýnt hversu mikilvægur hann er fyrir framtíð liðsins í síðustu þrem leikjum.
Javier Mascherano hefur verið í banni í síðustu þrem leikjum og því hefur það fallið í skaut Lucas að verjast meira á miðjunni og tengja saman sókn og vörn.
Benítez sagði: ,,Allir sem horfa vel á knattspyrnu hafa séð í síðustu þrem leikjum að hann hefur stjórnað miðjunni og reynt að halda liðinu saman. Við erum með marga leikmenn sem eru sóknarsinnaðir, en Lucas var fastur fyrir á miðjunni og vann stórkostlegt starf fyrir liðið. Ég var því mjög hissa þegar hann fékk á sig óvægna gagnrýni frá fólki. Stuðningsmenn okkar hafa engu að síður verið að velja hann sem mann leiksins undanfarið og það segir allt sem segja þarf."
,,Hann mun vera mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur í framtíðinni. Hann er dáður af öðrum leikmönnum því hann æfir mikið og vel, hann er alltaf að tala við aðra leikmenn og leggur mjög hart að sér. Leikmennirnir vita að hann er mjög góður atvinnumaður og hinn vænsti drengur."
Lucas hefur spilað alla 20 deildarleiki liðsins það sem af er tímabili og meirihlutann af leikjunum í Meistaradeildinni og bikarkeppnum. Benítez býst því við að hvíla hann eitthvað í náinni framtíð.
,,Lucas er að bæta sig stöðugt," sagði stjórinn. ,,En það er augljóst að ef hann spilar hvern einasta leik þá verður það mjög erfitt því við viljum ekki nota hann í hverjum einasta leik, sama gildir um Mascherano, Aquilani og Gerrard."
,,En kringumstæður hafa verið þannig að hann hefur þurft að spila nánast hvern einasta leik. Ef við höfum stjórn á ástandinu og fáum nokkra leikmenn til baka, þá munum við gefa honum smá frí. Það er erfitt að spila svona marga leiki í einu. Ef hann fær frí þá kemur hann til baka enn betri. Ég veit að hann getur bætt sig enn meira. Þegar ég ræddi við hann áður en við keyptum hann þá sagði ég fólki að við værum að kaupa fyrirliða Gremio - og hann var aðeins 19 ára."
,,Það hefur mikla þýðingu. Maður verður ekki fyrirliði liðs í Brasilíu á þessum aldri nema að maður búi yfir miklum andlegum styrk eða miklum karakter. Vonandi heldur hann áfram að vaxa hjá okkur."
TIL BAKA
Benítez hrósar afmælisbarni
Brasilíumaðurinn Lucas varð 23 ára þann 9. janúar og telur Rafa Benítez hann hafa sýnt hversu mikilvægur hann er fyrir framtíð liðsins í síðustu þrem leikjum.Javier Mascherano hefur verið í banni í síðustu þrem leikjum og því hefur það fallið í skaut Lucas að verjast meira á miðjunni og tengja saman sókn og vörn.
Benítez sagði: ,,Allir sem horfa vel á knattspyrnu hafa séð í síðustu þrem leikjum að hann hefur stjórnað miðjunni og reynt að halda liðinu saman. Við erum með marga leikmenn sem eru sóknarsinnaðir, en Lucas var fastur fyrir á miðjunni og vann stórkostlegt starf fyrir liðið. Ég var því mjög hissa þegar hann fékk á sig óvægna gagnrýni frá fólki. Stuðningsmenn okkar hafa engu að síður verið að velja hann sem mann leiksins undanfarið og það segir allt sem segja þarf."
,,Hann mun vera mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur í framtíðinni. Hann er dáður af öðrum leikmönnum því hann æfir mikið og vel, hann er alltaf að tala við aðra leikmenn og leggur mjög hart að sér. Leikmennirnir vita að hann er mjög góður atvinnumaður og hinn vænsti drengur."
Lucas hefur spilað alla 20 deildarleiki liðsins það sem af er tímabili og meirihlutann af leikjunum í Meistaradeildinni og bikarkeppnum. Benítez býst því við að hvíla hann eitthvað í náinni framtíð.
,,Lucas er að bæta sig stöðugt," sagði stjórinn. ,,En það er augljóst að ef hann spilar hvern einasta leik þá verður það mjög erfitt því við viljum ekki nota hann í hverjum einasta leik, sama gildir um Mascherano, Aquilani og Gerrard."
,,En kringumstæður hafa verið þannig að hann hefur þurft að spila nánast hvern einasta leik. Ef við höfum stjórn á ástandinu og fáum nokkra leikmenn til baka, þá munum við gefa honum smá frí. Það er erfitt að spila svona marga leiki í einu. Ef hann fær frí þá kemur hann til baka enn betri. Ég veit að hann getur bætt sig enn meira. Þegar ég ræddi við hann áður en við keyptum hann þá sagði ég fólki að við værum að kaupa fyrirliða Gremio - og hann var aðeins 19 ára."
,,Það hefur mikla þýðingu. Maður verður ekki fyrirliði liðs í Brasilíu á þessum aldri nema að maður búi yfir miklum andlegum styrk eða miklum karakter. Vonandi heldur hann áfram að vaxa hjá okkur."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

