| Ólafur Haukur Tómasson
Slúðrið, orðrómarnir og örvæntingafull bið eftir hreyfingu á leikmannamarkaðnum hjá Liverpool F.C. er allt í fullum gangi líkt og tíðkast gjarnan þegar félagsskiptaglugginn er opinn. Nóg er að frétta af kaupum og sölum hjá liðinu en ekkert hefur enn verið staðfest. Tvær leikmenn eru nálægt því að yfirgefa félagið, verið er að bjóða í annan og einn er að ljúka við félagsskipti sín til félagsins - þetta eru alla vega þær sögur sem að dreifast eins og eldur í sinu á frétta- og netmiðlum heimsins.
Samkvæmt staðarblaðinu Liverpool Echo og mörgum öðrum fréttamiðlum mun Liverpool reyna allt sem í þeirra valdi stendur til að hafa betur í baráttunni við Arsenal um undirskrift Morókóska framherjans Marouane Chamakh sem er á mála hjá frönsku meisturunum í Bordeaux.
Chamakh verður samningslaus í sumar og hefur hann ákveðið að halda til annars liðs eftir leiktíðina. Hann segist ekki vilja fara til annars félags í janúar heldur vilji hann ljúka leiktíðinni með Bordeaux. Liverpool er sagt muna freista þess að fá leikmanninn til að skrifa undir samning sem tekur gildi þegar samningur hans við frönsku meistarana rennur út. Baráttan um leikmannin gæti þó orðið hörð þar sem að lið á borð við Liverpool, Arsenal, Tottenham, Chelsea ásamt fleiri stórliðum í Evrópu.
Arsenal sýndi honum áhuga í sumar en fylgdi svo ekki á eftir honum og hann hóf leiktíðina með liði sínu. Liverpool mun reyna að sannfæra þennan sterka framherja um að Anfield sé rétti viðkomustaður hans í sumar en gæti þó þurft að berjast við önnur lið því leikmaðurinn er gífurlega eftirsóttur.
Chamakh er stór og sterkur framherji, góður í að halda boltanum, velur góð hlaup og getur búið til mikið pláss og færi fyrir liðsfélaga sína svo hæfileikar hans myndu að öllum líkindum koma til með að styrkja sóknarleik Liverpool til muna. Á síðustu leiktíð skoraði Chamakh 22 mörk í 42 leikjum fyrir frönsku meistarana og er búinn að skora sjö mörk í fjórtán leikjum það sem af er liðið af þessari leiktíð.
Forráðamenn Liverpool eiga að hafa átt í viðræðum við umboðsmann Chamakh í vikunni en ekkert hefur frést af því hvort fundurinn hafi í raun átt sér stað eða hver niðurstaða fundarins hefur verið en við á Liverpool.is munum auðvitað birta fréttir af því þegar eitthvað kemur fram.
TIL BAKA
Liverpool á eftir Maroune Chamakh
Slúðrið, orðrómarnir og örvæntingafull bið eftir hreyfingu á leikmannamarkaðnum hjá Liverpool F.C. er allt í fullum gangi líkt og tíðkast gjarnan þegar félagsskiptaglugginn er opinn. Nóg er að frétta af kaupum og sölum hjá liðinu en ekkert hefur enn verið staðfest. Tvær leikmenn eru nálægt því að yfirgefa félagið, verið er að bjóða í annan og einn er að ljúka við félagsskipti sín til félagsins - þetta eru alla vega þær sögur sem að dreifast eins og eldur í sinu á frétta- og netmiðlum heimsins.Samkvæmt staðarblaðinu Liverpool Echo og mörgum öðrum fréttamiðlum mun Liverpool reyna allt sem í þeirra valdi stendur til að hafa betur í baráttunni við Arsenal um undirskrift Morókóska framherjans Marouane Chamakh sem er á mála hjá frönsku meisturunum í Bordeaux.
Chamakh verður samningslaus í sumar og hefur hann ákveðið að halda til annars liðs eftir leiktíðina. Hann segist ekki vilja fara til annars félags í janúar heldur vilji hann ljúka leiktíðinni með Bordeaux. Liverpool er sagt muna freista þess að fá leikmanninn til að skrifa undir samning sem tekur gildi þegar samningur hans við frönsku meistarana rennur út. Baráttan um leikmannin gæti þó orðið hörð þar sem að lið á borð við Liverpool, Arsenal, Tottenham, Chelsea ásamt fleiri stórliðum í Evrópu.
Arsenal sýndi honum áhuga í sumar en fylgdi svo ekki á eftir honum og hann hóf leiktíðina með liði sínu. Liverpool mun reyna að sannfæra þennan sterka framherja um að Anfield sé rétti viðkomustaður hans í sumar en gæti þó þurft að berjast við önnur lið því leikmaðurinn er gífurlega eftirsóttur.
Chamakh er stór og sterkur framherji, góður í að halda boltanum, velur góð hlaup og getur búið til mikið pláss og færi fyrir liðsfélaga sína svo hæfileikar hans myndu að öllum líkindum koma til með að styrkja sóknarleik Liverpool til muna. Á síðustu leiktíð skoraði Chamakh 22 mörk í 42 leikjum fyrir frönsku meistarana og er búinn að skora sjö mörk í fjórtán leikjum það sem af er liðið af þessari leiktíð.
Forráðamenn Liverpool eiga að hafa átt í viðræðum við umboðsmann Chamakh í vikunni en ekkert hefur frést af því hvort fundurinn hafi í raun átt sér stað eða hver niðurstaða fundarins hefur verið en við á Liverpool.is munum auðvitað birta fréttir af því þegar eitthvað kemur fram.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

