L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
07.01.2010 08:01
|
Sf. Gutt
Okkur sjálfum að kenna!!!
Margir hafa sagt að Rafael Benítez eigi mesta sök á slöku gengi Liverpool en Steven Gerrard hefur nú gengið fram fyrir skjöldu og sagt að leikmenn Liverpool beri mesta ábyrgð á hrakförum liðsins. Hann er ekkert að skafa utan af hlutunum í viðtali við tímaritið Zoo og er það vel!
"Fólk hefur sagt að staða okkar sé mjög undarleg í ljósi þess hversu liðinu gekk vel á síðasta keppnistímabili. En staðan er ekkert skrýtin í sjálfu sér því við höfum ekki verið nógu góðir og stigataflan lýgur aldrei. Það er ákveðin ástæða fyrir því að við erum á þessum stað í stigatöflunni. Hún er sú að við höfum ekki verið nógu góðir og við leikmennirnir verðum að taka ábyrgð á stöðunni. Allir leikmenn liðsins verða að skoða stöðu liðsins í deildinni, bretta upp ermarnar og koma þessu knattspyrnufélagi á þann stað sem það á að vera. Það verður að koma liðinu eins ofarlega í stigatöflunni og mögulegt er."
"Það hefur vissulega verið erfitt að sætta sig við gang mála á þessu keppnistímabili. Við erum allir ósáttir við hvernig mál hafa þróast eftir að liðið endaði í öðru sæti á síðustu leiktíð. Við höfðum mikla trú á að við gætum náð titlinum núna. En það þýðir ekkert að fara í felur. Við verðum að líta í eigin barm og koma hlutunum í rétt horf."
"Við verðum að stefna að því að koma liðinu upp í hóp fjögurra efstu liða og það er því ennþá mikið undir. Það er og hefur alltaf verið aðalmarkmið allra hjá félaginu, og ég er þar ekki undanskilinn, að halda liðinu í Meistaradeildinni. Í þeirri keppni vilja allir bestu leikmennirnir spila. Eins skiptir þáttaka í keppninni miklu máli fjárhagslega."
"Ég hef enn trú á að við getum snúið blaðinu við. Ég er fyrirliði liðsins og verð að leiða liðið í rétta átt. Það verður að takast. Það er allt í lagi að velta því fyrir sér hvers vegna gengi liðsins hefur verið eins og raun ber vitni en það mun ekkert breytast ef við látum ekki verkin tala úti á vellinum."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir