L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
07.01.2010 07:01
|
Sf. Gutt
Vladimir líka hættur
Tilkynnt hefur verið að Patrik Berger sé hættur að leika knattspyrnu. Vladimir Smicer, landi hans og fyrrum félagi hjá Liverpool, er líka hættur knattspyrnuiðkun. Þetta var tilkynnt seint á síðasta ári. Vladimir sagði að hann vildi spila lengur en líkaminn segði nóg komið.
Vladimir kom til Liverpool sumarið 1999 og lék með liðinu til sumars 2005. Enginn mun gleyma þætti hans í Evrópubikarsigrinum þá um vorið. Hann skoraði bæði í leiknum sjálfum og í vítaspyrnukeppninni eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Vladimir varð Deildarbikarmeistari 2001 og 2003. Hann vann F.A. bikarinn og Evrópubikar félagsliða 2001.
Frá Liverpool fór Vladimir til Frakklands þar sem hann lék með Bordeaux. Hann endaði svo ferilinn með Slavia Prag en hjá því félagi hófst hann. Strax eftir að hann lagði skóna á hilluna var hann ráðinn landsliðþjálfari Tékka. Kom sú ráðning mjög á óvart.
Vladimir lék 184 leiki með Liverpool og skoraði 19 mörk. Meiðsli komu þó oftlega í veg fyrir að hann hann næði að sýna sitt besta á Englandi. Landsliðsferill hans var farsæll og lék hann 81 landsleik. Hann skoraði 27 landsliðsmörk.
Hér má sjá
umfjöllun um hann á vefsíðu LFCHistory.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir